Elín hefur farið fyrir hópi aðstandenda íbúa á hjúkrunarheimilinu Sóltúni í Reykjavík sem lýsa áhyggjum sínum af fyrirhuguðum framkvæmdum vegna stækkunar heimilisins.
Faðir Elínar verður 91 árs á þessu ári og segir Elín í grein sinni að hann sé heilsulítill og lítið megi út af bregða í þeim efnum.
„Vafalaust eru margir íbúar heimilisins við verri heilsu en pabbi og enn viðkvæmari fyrir raski og hávaða en hann, svo ekki sé talað um skyndilegar breytingar á umhverfi og daglegri rútínu,“ segir Elín.
Elín bendir á að ákveðið hafi verið að stækka hjúkrunarheimilið að íbúum þess forspurðum. Fyrirhugaðar byggingaframkvæmdir eiga að standa yfir í rúm tvö ár og gera áætlanir ráð fyrir að byggð verði heil hæð ofan á húsið, tvær álmur lengdar og íbúðum fjölgað úr 92 í 150 til 160.
„Til stendur að íbúar hjúkrunarheimilisins búi í húsinu allan tímann sem byggingarframkvæmdirnar standa yfir. Það liggur þó í hlutarins eðli að hávaði og rask sem hlýtur að fylgja slíkri framkvæmd mun valda mikilli skerðingu á lífsgæðum íbúa heimilisins og mun þessi nýi veruleiki gnæfa yfir lífi þeirra,“ segir Elín.
Í grein sinni bendir hún á að Sóltún starfi eftir þjónustusamningi við ríkið sem gerður var árið 2000 í framhaldi af útboði ríkisins á rekstri hjúkrunarheimilis.
„Sóltún (Öldungur hf.) varð hlutskarpast í því útboði, en gekkst um leið undir skyldur bæði gagnvart ríkinu og íbúum um að veita hjúkrunarþjónustu af bestu gerð sem uppfylli kröfur um gæði og virði mannréttindi. Þessa þjónustu veitir Sóltún í umboði ríkisins og þiggur háar upphæðir úr ríkissjóði fyrir hana. Íbúar sem eru aflögufærir greiða einnig háar upphæðir fyrir dvöl á Sóltúni svo að lítið ráðstöfunarfé situr eftir hjá íbúum heimilisins í lok hvers mánaðar,“ segir Elín en í grein sem hún skrifaði í mars síðastliðnum kom fram að faðir hennar greiddi 530 þúsund krónur á mánuði fyrir dvöl og umönnun á Sóltúni.
Elín segir í grein sinni að hún hafi ásamt hópi aðstandenda lýst verulegum áhyggjum af fyrirætlunum um þessar tímafreku og hávaðasömu framkvæmdir.
„Til að glöggva okkur á því hvaða lagaskyldur Sóltún og ríkið beri gagnvart íbúum heimilisins höfum við gert tilraun til að afla upplýsinga frá ýmsum opinberum stofnunum um þjónustusamning Sóltúns og ríkisins frá árinu 2000. Til stuðnings beiðni okkar um að fá að kynna okkur þennan 25 ára gamla þjónustusamning höfum við vísað til ákvæða upplýsingalaga sem tryggja almenningi aðgang að gögnum sem varða opinbera þjónustu sem þessa,“ segir Elín en til að gera langa sögu stutta hefur sú eftirgrennslan lítinn árangur borið enn sem komið er.
„Heilbrigðisráðuneytið hefur vísað á Sjúkratryggingar sem hafa enn ekki afgreitt beiðni okkar um að fá samninginn afhentan þótt tæpir þrír mánuðir séu liðnir frá því hún kom fram. Okkur hefur jafnframt ekki tekist að ná fundi forsvarsmanna Sjúkratrygginga, þótt eftir því hafi verið leitað og ítrekað. Þá hefur Sóltún lagst gegn því að við fáum að kynna okkur þjónustusamninginn á þeim forsendum að hann innihaldi viðskiptaleyndarmál,“ segir hún.
Elín segir að einnig hafi verið óskað eftir því við heilbrigðisráðuneytið að fá aðgang að rekstrarleyfi Sóltúns, en aðstandendur fengið þau svör að leyfið finnist ekki í skjalasafni ráðuneytisins.
„Á heimasíðu Sóltúns er ekki heldur hægt að nálgast upplýsingar um þjónustusamninginn við ríkið sem fyrirtækið á að starfa eftir, né er þar minnst á þau lög og reglur sem gilda um starfsemi hjúkrunarheimilisins. Á vefsíðum hins opinbera eru upplýsingar um þessi mikilvægu atriði einnig af skornum skammti,“ segir Elín og bætir við að allt þetta sé með ólíkindum og ekki til þess að auka traust á stjórnsýslu í þeim mikilvæga málaflokki sem málefni aldraðra er.
„Þá vekur þessi staða áleitnar spurningar um hver gætir í raun og veru réttinda aldraðra sem dvelja á hjúkrunarheimilum, sem eru rekin fyrir opinbert fé þótt einkaaðilar haldi utan um reksturinn í umboði ríkisins. Hjá hinu opinbera virðast þó öll ljós vera slökkt, á meðan einkafyrirtækinu er eftirlátið að hafa sína hentisemi um hvort það uppfylli skyldur sínar gagnvart íbúum Sóltúns í samræmi við gerða samninga og mannréttindi.“