fbpx
Föstudagur 20.júní 2025
Fréttir

Dóttirin ein á leikskólalóðinni þegar hún var sótt, leikskólinn harðlæstur og enginn starfsmaður – „Við erum að vinna með lítið fólk ekki dauða hluti“

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 19. júní 2025 22:00

Myndin er samsett og tengist fréttinni ekki beint.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Móðir nokkur segist í öngum sínum eftir að dóttir hennar var sótt í leikskólann. Dóttirin var ein á leikskólalóðinni, leikskólinn harðlæstur og enginn starfsmaður sjáanlegur.

 „Þegar barnsfaðir minn er að sækja dóttur okkar í leikskólanum í dag að þá er enginn kennari með henni og allt læst!

Hvert tilkynni ég svona? Er svo reið að ég get varla talað og græt bara yfir því hvað hefði getað gerst ef það hefði ekki annað foreldri fylgst með henni þar til pabbi hennar kom.

Tek það fram að hann var ekki seinn að sækja en hún er með tíma til 16:30 og hann var kominn inn á lóðina rétt fyrir þann tíma. Hún var s.s. ein grátandi á útisvæðinu þegar hann kom að henni og þá var hann búinn að vera að rölta um lóðina að skima eftir henni eða kennara í smá stund.“ 

Þetta skrifar móðirin í nafnlausri færslu í Facebook-hópnum Mæðra tips! en í honum eru um 34 þúsund meðlimir og þar má leita ráða um allt sem tengist mæðrum og börnum. Um hundrað athugasemdir hafa verið skrifaðar við færsluna.

Segist ekki hafa góða reynslu af því að ræða við leikskólastjórann

Sú fyrsta bendir henni á að ræða atvikið við leikskólastjórann. Móðirin svarar og segist ekki hafa góða reynslu af því  „til dæmis var dóttir mín með glóðurauga um jólin þar sem hún datt í leikskólanum stuttu áður en enginn vissi hvað hefði komið fyrir og ekkert aðhafst.“ Konan svarar móðurinni aftur: „Þá ferðu í yfirmann leikskólans. Þú allaveganna verður að láta vita svo þetta endurtaki sig ekki. Og svo myndi ég sækja um fluttning ef þú treystir þeim ekki fyrir barninu þínu.“ 

Tilkynna atvikið

Móðir ein segir að tilkynna verði atvikið alla leið, til barnaverndar og lögreglu ef ekkert verði gert:

„Hún segir allt læst, og það var annað foreldri sem að fylgdist þá með barninu, þetta foreldri hefur væntanlega þá fylgst með barninu þeirra fyrir utan, á leikskólalóðinni!

En þú byrjar á því að tala við leikskólastjórann, tilkynnir henni/honum um þetta atvik, ef þú/þið fáið svo þau svör að þau ætli ekki að gera neitt eða geti ekki gert neitt, þá sendirðu tölvupóst á þann sem er yfir á Menntasviðinu – leikskólasviðið í þínu bæjarfélagi og tilkynnir þeim um þetta atvik!

Bætt við; Ef hvorki leikskólastjórinn né leikskólasviðið á Menntasviðinu í ykkar bæjarfélagi segjast ekki geta gert neitt, Þá tilkynnið þið þeim að þið munið tilkynna leikskólastjórann, þennan starfsmann og yfirmann menntavsiðsins til bvn!

Verið þið foreldrarnir sterk saman í gegnum þetta, þetta er sjúklega mikið áfall og erfitt fyrir foreldri/foreldra að koma að barninu sínu svona á leikskólalóðinni!

Verið viðbúin því að barnið muni segja ykkur að það vilji ekki fara aftur í leikskólann..

En verið þið líka dugleg að skafa ekkert af hlutunum við leikskólastjórann að það muni taka ykkur og barnið aaaaaaaansi langan tíma að geta treyst þeim 350% aftur, ef það mun verða svo heppilegt að geta treyst þeim full on aftur!

Ekki gefast upp, þið þurfið að vera sterk saman í gegnum þetta, þar sem að þið eruð raddir barnsins ykkar núna saman í þessu, fariði saman á fundi og hittingana og allt í kringum þetta, uppá að þau færu ekki að geta sagt við þig eða hann, „þú varst bara ein/n þetta eru bara þín orð gegn okkur x mörgum“

Gangi ykkur sjúklega vel í þessu.“ 

Leikskólakennarar segjast aldrei myndu skilja barn eftir eitt

Nokkrar segjast hafa unnið á leiksskóla og segja ferlið ef barn er ekki sótt á tilsettum tíma að fyrst sé hringt í annað foreldrið. Svari það ekki sé hringt í hitt foreldrið. Svari það ekki heldur sé hringt í aðra sem megi sækja barnið og eru skráðir, eins og til dæmis afa og ömmur. Segjast þær oft hafa fengið símtal um að foreldri seinki að sækja barn og hafa beðið með því. 

„Ég er á lokunarvakt í mínum leikskóla og aldrei, ekki undir neinum kringumstæðum, myndi ég skilja barn eitt eftir sama hversu seint foreldri væri að sækja. Ég á sjálf barn (sem að vísu er unglingur í dag) en ég gerði ráðstafanir varðandi hana þegar hún var yngri því ég vissi að sem lokunarvakt þá gæti alltaf eitthvað komið uppá. Og plús það að börnin eru á minni ábyrgð frá þeirri stundu sem ég tek við þeim og þar til ég afhendi þau til foreldra eða annara forráðamanna. Ég vinn fyrir börnin fyrst og fremst ekki foreldra þeirra þó þeir greiði fyrir þessa þjónustu. Mín skilda er að vernda börnin og gæta þeirra þar til þau eru sótt. Að reyna að afsaka þetta er gjörsamlega sturlað og jafnframt siðblint. Og sé manneskja svona hugsandi þá á sú manneskja EKKERT erindi inn i leikskóla. Við erum að vinna með lítið fólk ekki dauða hluti.“ 

Annar leikskólakennari segir:

„Heyra í bæði leikskólastjóra og sviðsstjóra sem sér um leikskólamálin í þínu bæjarfélagi, strax í fyrramálið.

Það á aldrei að geta gerst fyrir misskilning starfsmanna að barn sé skilið eftir eitt!

Það þarf greinilega að bæta vinnureglur á leikskóla barnsins þíns. Það á aldrei að geta gerst að leikskólabarn sé skilið eftir eitt. Ég vinn á leikskóla og ég (eða annar starfsmaður leikskólans) þarf að sjá og kveðja hvert einasta barn, og ég á að geta svarað því hver það var sem sótti barnið. Þegar öll börn eru farin heim þá göngum við hring um lóðina áður en við förum sjálf úr vinnu, bara til öryggis jafnvel þótt við séum fullviss um að öll börn séu farin.“ 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Húsleitir víða í gær og farið fram á gæsluvarðhald í dag

Húsleitir víða í gær og farið fram á gæsluvarðhald í dag
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Arnar ómyrkur í máli: „Þetta fyrirkomulag er gargandi tímaskekkja“

Arnar ómyrkur í máli: „Þetta fyrirkomulag er gargandi tímaskekkja“
Fréttir
Í gær

Íbúar hvattir til að eyða WhatsApp úr símtækjum sínum

Íbúar hvattir til að eyða WhatsApp úr símtækjum sínum
Fréttir
Í gær

Sigrún Ósk komin með nýtt starf – „Spennt fyrir að leggja mín lóð á vogarskálarnar“

Sigrún Ósk komin með nýtt starf – „Spennt fyrir að leggja mín lóð á vogarskálarnar“
Fréttir
Í gær

Íranir sagðir hafa 48 tíma til að bjarga sér – Annars mæta Bandaríkin til leiks

Íranir sagðir hafa 48 tíma til að bjarga sér – Annars mæta Bandaríkin til leiks
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þessi 15 voru sæmd Fálkaorðunni í dag

Þessi 15 voru sæmd Fálkaorðunni í dag