fbpx
Miðvikudagur 18.júní 2025
Fréttir

Segist ítrekað rændur í Bónus nema hann afgreiði sig sjálfur og krefst endurgreiðslu – „Takk má leggja inn á reikning“

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 18. júní 2025 09:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Karlmaður nokkur á áttræðisaldri sagði farir sínar ekki sléttar og sagðist sífellt rændur þegar hann greiddi á kassa í Bónus, annað væri upp á teningnum þegar hann færi á sjálfsafgreiðslukassa. 

Enn og aftur kemur óréttlætið í ljós í BONUS þegar greitt er á kassa þá er maður rukkaður um HEILAR 9 krónur fyrir hvern ávaxtapoka. Fari ég hins vegar í sjálfsafgreiðslu kostar hann 0 eða ekki neitt. Fer fram á endurgreiðslu á poka Takk. má leggja inn á reikning.

Þetta skrifar maðurinn í færslu í Facebook-hópnum Vertu á verði – eftirlit með verðlagi og birti með mynd af lógói Haga. Maðurinn birti þó ekki upplýsingar um bankareikning sinn.

Nokkrir hafa skrifað athugasemdir við færslu mannsins og bent honum á að það sé hann sem skuldi Bónus pening, en ekki öfugt.

„Ef þú ferð á sjálfsafgreiðslukassa og setur ekki inn fjölda af litlum pokum sem þú notar við ávaxta og grænmetis kaupin þá ertu að stela.“

„Hann kostar i sjalfafgreiðdlu. Undir þer komið að greiða hann. Það er vslmogulriki fyrir glæru pokana undir pokar.“

„Viltu ekki frekar borga fyrir pokana sem þú hefur stolið? Mátt leggja inn á reikning.“

„Ertu semsagt að segja frá þínun eiginn þjófnaði?

Það var set í lög fyrir nokkrum árum að það má EKKI gefa poka lengur.

Einnig eru þetta maispokar minni mig þannig ekki plast pokar eins og þu segir.

Vonandi legguru inná reiking Bónus fyrir pokana sem þú hefur stolið.“

„Sjálfsafgreiðslur bjóða upp á stuldur og þeir sem nota kassa borga fyrir þá sem ekki eru heiðarlegir.“

„Ég verð nú bara að segja að þegar matvörubúðirnar hækka verðin eins ört og raunin er þá græt ég það ekki að taka einn og einn poka án þess að greiða fyrir en oftast er ég með minn eigin fjölnota poka.“

Rukkað fyrir burðarpoka samkvæmt lögum frá 1. janúar 2021

Þann 6. maí 2019 samþykkti Alþingi breytingu á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir sem meðal annars kveða á um að óheimilt verði að afhenda plastburðarpoka í verslunum frá og með 1. janúar 2021. Óheimilt varð að afhenda hvers kyns burðarpoka án endurgjalds frá og með 1. september 2019.

„Burðarpokar úr plasti eru hvoru tveggja þykku pokarnir sem fást í stykkjatali á afgreiðslukössum verslana og þunnu pokarnir sem m.a. hefur verið hægt að fá endurgjaldslaust í grænmetiskælum matvörubúða. Bannið tekur ekki til plastpoka sem eru söluvara í hillum í verslunum, svo sem nestispoka og ruslapoka sem seldir eru margir saman í rúllum.“

Með samþykkt laganna er fylgt eftir tillögum samráðsvettvangs um aðgerðir í plastmálefnum sem í sátu fulltrúar atvinnulífs, sveitarfélaga, umhverfisverndarsamtaka, félagasamtaka, opinberra stofnana, Alþingis, ráðuneyta og fleiri. Hópurinn skilaði umhverfis- og auðlindaráðherra tillögum að 18 aðgerðum í og bann við burðarplastpokum var ein þeirra, eins og sagði í frétt á vef Stjórnarráðsins á sínum tíma.

Með lögunum var innleidd Evróputilskipun er lýtur að því að draga úr notkun á burðarpokum úr plasti. Frumvarpið gengur þó lengra en lágmarkskröfur tilskipunarinnar gera ráð fyrir. Þannig ná þau til allra burðarpoka úr plasti, óháð þykkt þeirra, m.a. þunnu plastpokana sem m.a. hafa verið fáanlegir við grænmetiskæla verslana. Lögin kveða einnig á um að óheimilt verði að afhenda burðarpoka úr plasti, hvort sem er með eða án endurgjalds, á sölustöðum vara frá og með 1. janúar 2021, en þó tilskipunin kveði ekki á um þetta er í henni tiltekið að aðildarríkjum sé heimilt að grípa til slíkra ráðstafana. Þá eru allir burðarpokar gerðir gjaldskyldir, óháð því úr hvaða efni þeir eru. Þetta er gert til að reyna að auka hlut fjölnota poka, draga úr ofneyslu burðarpoka og koma í veg fyrir að ein einnota neysla færist yfir á aðra.

„Banni við burðarplastpokum er ekki ætlað að vera allsherjarlausn á plastvandamálinu, heldur ein aðgerð af mörgum,“ sagði Guðmundur Ingi Guðbrandsson, þáverandi umhverfis- og auðlindaráðherra. „Í mínum huga er þetta er sérstaklega mikilvæg aðgerð því hún snertir daglegt líf okkar og eykur þannig vitund okkar um plast og notkun þess í okkar daglega lífi. Ég fagna því líka að með þessum lögum gengur Ísland á undan með góðu fordæmi og tekst af enn frekari krafti á við plastmengun og neyslu en alþjóðasamningar okkar segja til um.“

Sjá má ákvæðið um burðarpoka í 37.  grein laganna þar sem segir:

37. gr. b. Afhending burðarpoka.

Óheimilt er að afhenda burðarpoka án endurgjalds á sölustöðum vara og skal gjaldið vera sýnilegt á kassakvittun.

37. gr. c. Bann við afhendingu burðarpoka úr plasti.

Óheimilt er að afhenda burðarpoka úr plasti, hvort sem er gegn endurgjaldi eða ekki, á sölustöðum vara.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Íranir sagðir hafa 48 tíma til að bjarga sér – Annars mæta Bandaríkin til leiks

Íranir sagðir hafa 48 tíma til að bjarga sér – Annars mæta Bandaríkin til leiks
Fréttir
Í gær

Þessi 15 voru sæmd Fálkaorðunni í dag

Þessi 15 voru sæmd Fálkaorðunni í dag
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Gunnar sendir neyðarkall: „Þetta neyddist ég til að gera á föstudag“

Gunnar sendir neyðarkall: „Þetta neyddist ég til að gera á föstudag“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sigurbjörg handtekin og kærð fyrir hótanir í garð borgarstjóra – Handjárnuð og haldið í 16 tíma

Sigurbjörg handtekin og kærð fyrir hótanir í garð borgarstjóra – Handjárnuð og haldið í 16 tíma
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Egill tjáir sig um áformin umdeildu – „Hún er algjörlega forljót“

Egill tjáir sig um áformin umdeildu – „Hún er algjörlega forljót“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Sálfræðingur sem fékk ekki starfsleyfi á Íslandi fór aftur í sálfræðinám en það dugði ekki til

Sálfræðingur sem fékk ekki starfsleyfi á Íslandi fór aftur í sálfræðinám en það dugði ekki til