fbpx
Sunnudagur 15.júní 2025
Fréttir

Akureyrarbær gerði ekkert vegna ófremdarástands á friðuðu húsi

Ritstjórn DV
Sunnudaginn 15. júní 2025 09:03

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur fellt úr gildi þá ákvörðun Akureyrarbæjar að aðhafast ekkert vegna byggingar á baðherbergi í fjöleignarhúsi í bænum. Ekkert leyfi var fengið fyrir framkvæmdinni og nokkrir fagaðilar hafa varað við því að ástand þess sé afar slæmt sem og þess hluta hússins þar sem það er staðsett. Húsið er um 120 ára gamalt og þar með friðað og er á skrá Minjastofnunar yfir menningarminjar en fram kemur í úrskurði nefndarinnar að málið eigi sér margra ára sögu.

Eigandi íbúðar á neðri hæð hússins kærði ákvörðun bæjarins um að aðhafast ekkert.

Málavextir eru þeir að árið 2015 útbjó þáverandi eigandi íbúðar á efri hæð hússins baðherbergi í stigahúsi sameignarinnar. Árið 2018 sendi byggingarfulltrúi Akureyrarbæjar bréf til þessa aðila og fór fram á að sótt yrði um byggingarleyfi vegna bað­herbergisins og tók fram að beitt yrði dagsektum ef nauðsynlegum gögnum yrði ekki skilað. Á sama tíma var umrædd íbúð í söluferli og var ekki brugðist við bréfinu.

Núverandi eigandi íbúðar á neðri hæð hússins keypti hana 2021. Sama ár keypti annar aðili íbúðina á efri hæðinni. Um sama leyti var fengin byggingarfræðingur til að taka út stigahúsið og samkvæmt umsögn hans voru útveggir viðbyggingar skemmdir af raka og mikill raki í veggjum efri hæðar. Eigandinn á neðri hæðinni sendi bréf til Akureyrarbæjar í lok árs 2024 og krafðist þess að gripið yrði til aðgerða vegna óleyfisframkvæmda sem leitt hafi til kostnaðarsamra framkvæmda af hans hálfu en bærinn hafnaði því og var þá málið kært til nefndarinnar.

Ástandinu leynt

Í kærunni kom fram að baðherberginu hefði verið komið fyrir í stigahúsinu, sem sé sameign, árið 2015. Baðherbergið hafi verið með baðkari, sturtu og salerni ásamt hitalögnum í gólfi. Við framkvæmdirnar hafi neðri hæð stigahússins orðið lagnageymsla og niðurfallarými fyrir hið nýja baðherbergi. Samkvæmt fyrir­liggjandi upplýsingum hafi erlendir verkamenn unnið verkið án þess að nokkuð hafi verið gætt að til að mynda burðarþoli. Hörmulegu ástandi stigahússins hafi verið leynt, en árið 2005 hafi það verið lýst ónýtt af húsasmið sem þá hafi annast viðgerðir á þaki íbúðarhússins. Ekki hafi verið gert við þak stigahúss því eigendum íbúða hússins á þeim tíma hafi verið ráðlagt að rífa stigahúsið.

Eigandi íbúðarinnar á efri hæðinni sem lét koma baðherberginu fyrir seldi hana 2018. Í kærunni kemur fram að kaupendur íbúðarinnar, sem seldu hana svo 2021, hafi haft uppi athugasemdir vegna leka á þaki stigahússins og leitað réttar síns. Á þeim tíma hafi ýmsir fagaðilar komið að málinu. Meðal annars hafi verkfræðingur sent erindi til bæjarins þar sem fram komi að brýnt sé að gera seljanda íbúðarinnar á efri hæðinni grein fyrir að byggingarreglugerð hafi ekki verið fylgt við framkvæmdirnar. Sama dag hafi Akureyrarbær sent framkvæmdaraðilanum bréf varðandi óleyfisframkvæmdir ásamt broti á lögum um menningarminjar.

Skemmdir

Í kærunni kemur enn fremur fram að 2021 þegar íbúðin á efri hæð var seld núverandi eiganda að fasteignasalan hafi fengið byggingafræðing til þess að meta ástand stigahússins. Í umsögn hans hafi verið staðfest að útveggir viðbyggingar væru skemmdir af raka og upprunalegu veggjagrindurnar ásamt borðaklæðningu útveggja ónýtir. Á neðri hæð væru borð og burðarviður mikið fúinn og samkvæmt rakamælingu væri mikill raki í veggjum efri hæðar.

Kærandinn segir að núverandi eigandi íbúðar á efri hæð hafi einn tekið ákvörðun um að hefja viðgerðir á stigahúsi sumarið 2022 án allra tilskilinna leyfa. Hafi hann meðal annars rifið upp gólf og hafi þá komið í ljós að enginn grunnur sé undir stigahúsi. Hafi í kjölfarið verið rifnir upp útveggir stigahússins og komið fyrir járnburðarstöngum til þess að halda uppi baðherberginu. Á húsfundi í október 2022 hafi kærandi mótmælt frekari greiðsluskyldu á byggingu nýs stigahúss eftir að hafa tekið þátt í viðgerð á þaki stigahússins.

Sinnuleysi

Kærandinn vildi meina í kærunni að hann hefði þurft að gjalda fyrir sinnuleysi bæjaryfirvalda í málinu og sé ætlað að bera kostnað af auknu verðgildi efri hæðar enn og aftur. Húsasmíðameistari, sem skoðað hafi stigahúsið 2023, telji endurbyggingu umfangsmeiri en áður hafi verið áætlað. Reisa þurfi burðarstoðir, endurbyggja veggi, steypa grunn og plötu. Hvorki kostnaðaráætlanir né teikningar virðist þó hafa verið gerðar eða sótt um leyfi svo vitað sé fremur en árið 2018. Sé því ljóst að endurbyggja þurfi stigahúsið langt umfram það sem kallast megi venjulegt viðhald.

Sagðist eigandinn á neðri hæðinni hafa þurft að þrábiðja Akureyrarbæ um að afhenda öll gögn málsins. Byggingarfulltrúi hafi neitað að nokkur gögn væru til en hann hafi loks fengið einhver gögn afhent þar á meðal bréf bæjarins frá 2018 til þáverandi eiganda íbúðarinnar á efri hæð þar sem fram komi að framkvæmdin hafi verið í óleyfi og brot á lögum um menningarminjar.

Ekki skylt

Akureyrarbær vildi meina í sínum andsvörum að honum bæri engin skylda til að bregðast við. Bréfið frá 2018 geti vart talist grundvöllur frekari aðgerða svo löngu síðar. Misfarist hafi á sínum tíma að fylgja málinu eftir en það sé þó ekki unnt að slá því föstu að baðherbergi á 2. hæð sé óleyfisframkvæmd vegna þeirra samskipta.

Vísaði bærinn til eignaskiptayfirlýsingar frá 2023 en samkvæmt henni hefði eigandinn á neðri hæðinni samþykkt að baðherbergið í stigahúsinu væri í séreign eiganda íbúðar á efri hæð. Baðherbergið væri enn fremur teiknað inn á yfirlýsinguna. Þar af leiðandi væri um einkaréttarlegan ágreining að ræða og því bæri bænum engin skylda til að bregðast við.

Eigandinn á efri hæð vildi meina að baðherbergi hefði verið í einhverri mynd í stigahúsinu í nokkra áratugi og ástand stigahússins væri vissulega slæmt en það væri alls ekki ónýtt eins og haldið væri fram.

Fullt tilefni

Eigandinn á neðri hæð ítrekaði hins vegar, í svörum við andsvörum bæjarins og eigandans á efri hæð, að það hefði ekki verið hann sem hefði fyrst haldið því fram að um óleyfisframkvæmd og brot á lögum um menningarminjar væri að ræða. Það hefði verið Akureyrarbær með fyrrnefndu bréfi 2018. Sagði eigandinn að bæjarlögmaður hafi viðurkennt að misfarist hafi að fylgja málinu eftir 2018 þó hann segi nú að málið komi bænum ekki við. Sagði eigandinn bæinn hafa brugðist rannsóknarskyldu sinni í málinu því fullt tilefni hafi verið til að rannsaka ástand hússins.

Í niðurstöðu úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála eru röksemdir Akureyrarbæjar fyrir því að bregðast ekki við raktar sem og röksemdir eigandans á neðri hæðinni. Vísað er til gagna frá þeim aðilum sem mátu ástand stigahússins og baðherbergisins og nefndir hafa verið hér. Nefndin segir að niðurstöður þessara aðila sýni fram á að fullt tilefni hafi verið til að kanna ástand þessara hluta hússins, svo sem með skoðun á vettvangi, en ekki verði séð að svo hafi verið gert eða gengið hafi verið með öðrum hætti úr skugga um ástand umrædds stigahúss, svo sem með tilliti til heilbrigðis- og öryggiskrafna byggingarreglugerðar. Röksemdir bæjarins um að baðherbergið sé séreign breyti engu þar sem þar sem heilbrigðis- og öryggiskröfur byggingareglugerðar eigi jafnt við um séreign og sameign í fjöleignarhúsi.

Nefndin telur því ljóst að málið hafi ekki verið rannsakað með fullnægjandi hætti af Akureyrarbæ og ákvörðunin um að aðhafast ekkert vegna málsins er því felld úr gildi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Flugstjórinn hokinn af reynslu og ætlaði að setjast í helgan stein á næstu mánuðum

Flugstjórinn hokinn af reynslu og ætlaði að setjast í helgan stein á næstu mánuðum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Læknahjónin ætluðu að hefja nýtt líf – Tóku þessa mynd skömmu fyrir flugtak

Læknahjónin ætluðu að hefja nýtt líf – Tóku þessa mynd skömmu fyrir flugtak