fbpx
Miðvikudagur 05.nóvember 2025
Fréttir

Ágúst Ólafur aðstoðarmaður Heiðu Bjargar

Kristinn H. Guðnason
Þriðjudaginn 10. júní 2025 16:19

Nýr kafli há Ágústi Ólafi er að hefjast.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ágúst Ólafur Ágústsson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Heiðu Bjargar Hilmisdóttur borgarstjóra. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.

Ágúst Ólafur sat á Alþingi árin 2003 til 2009 og 2017 til 2021 fyrir Samfylkinguna. Hann var einnig varaformaður flokksins árin 2005 til 2009. Hann hefur einnig verið efnahagsráðgjafi forsætisráðherra, setið í bankaráði Seðlabankans og í Evrópunefnd forsætisráðherra.

„Hann vann sem sérfræðingur á aðalskrifstofu Sameinuðu þjóðanna í New York og hefur að undanförnu stundað doktorsnám í opinberri stjórnsýslu. Samhliða hefur hann kennt við Háskóla Íslands ásamt því að sinna ráðgjafarstörfum meðal annars fyrir Sjúkraliðafélag Íslands, Rannsóknarsetur skapandi greina og Ljósið,“ segir í tilkynningunni.

Ágúst Ólafur er lögfræðingur, hagfræðingur og stjórnsýslufræðingur að mennt og á sæti í stjórn Dýraverndunarsambands Íslands og Evrópuhreyfingarinnar.

Hann er kvæntur Jóhönnu Bryndísi Bjarnadóttur, tannlækni og fyrrverandi formanni Tannlæknafélagsins.

„Ágúst Ólafur hefur störf á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara í Ráðhúsi Reykjavíkur þann 13. júní næstkomandi.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Harðvítugar deilur milli leigjenda og leigusala – Ásakanir um hótanir, þjófnað, myglu og skólpflóð

Harðvítugar deilur milli leigjenda og leigusala – Ásakanir um hótanir, þjófnað, myglu og skólpflóð
Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Um 40 starfsmönnum Icelandair sagt upp

Um 40 starfsmönnum Icelandair sagt upp
Fréttir
Í gær

Tekur ekki undir með Snorra Mássyni og segir Miðflokkinn ekki á móti innflytjendum

Tekur ekki undir með Snorra Mássyni og segir Miðflokkinn ekki á móti innflytjendum
Fréttir
Í gær

Sótti um vinnu og skilaði inn fölsuðu sakarvottorði til að fela brotaferil

Sótti um vinnu og skilaði inn fölsuðu sakarvottorði til að fela brotaferil
Fréttir
Í gær

Örn sakfelldur fyrir vörslu á grófu barnaníðsefni – Slapp við ákæru fyrir að misnota börn fyrir 32 árum síðan þrátt fyrir játningu

Örn sakfelldur fyrir vörslu á grófu barnaníðsefni – Slapp við ákæru fyrir að misnota börn fyrir 32 árum síðan þrátt fyrir játningu
Fréttir
Í gær

„Þetta endar oft þannig að þegar barnið er orðið fullorðið þá er foreldrið orðið öryrki“

„Þetta endar oft þannig að þegar barnið er orðið fullorðið þá er foreldrið orðið öryrki“