fbpx
Laugardagur 07.júní 2025
Fréttir

Fræg mál útlendinga sem fengu íslenskan ríkisborgararétt rifjuð upp – Tengdadóttir ráðherra, skákmaður, barn staðgöngumóður og fólk á flótta

Ritstjórn DV
Laugardaginn 7. júní 2025 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mál kólumbíska drengsins, Oscars Botanegra, var áberandi í vikunni eftir að ákveðið var að fresta brottvísun hans eftir að Víðir Reynisson, formaður Allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis, hafði samband við Útlendingastofnun og tilkynnti að yfirgnæfandi líkur væru á að Alþingi veitti Oscari íslenskan ríkisborgararétt. Oscar er 17 ára gamall og hefur verið í umsjón fósturforeldra sem hafa barist fyrir því að fá að halda honum hjá sér.

Víðir hefur í kjölfarið verið sakaður um pólitísk afskipti og trúnaðarbrest. Stjórnarandstaðan hefur farið mikinn í vikunni og harðlega gagnrýnt afskipti Víðis. Meðal annars hefur Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, lagt til að heimild Alþingis til veitingar ríkisborgararéttar verði tekin til endurskoðunar. Hún skrifaði grein þar sem hún sagði ekkert kerfi lifa af pólitískan geðþótta.

Eftir umræður vikunnar er ekki úr vegi að rifja upp önnur fræg mál þar sem Alþingi hefur veitt ríkisborgararétt og eitt nýlegt mál þar sem brottvísun hælisleitanda var frestað eftir afskipti ráðherra.

Yazan Tamimi

Skemmst er að rifja upp mál palestínska drengsins Yazans Tamimi og fjölskyldu hans. Í september á síðasta ári stóð til að brottvísa Yazan og fjölskyldu eftir að umsókn þeirra um alþjóðlega vernd var hafnað. Kvöldið fyrir fyrirhugaða brottvísun fóru lögreglumenn og sóttu Yazan á hvíldarheimilið Rjóðrið. Guðmundur Ingi Guðbrandsson, þáverandi félags- og vinnumarkaðsráðherra, hafði þá samband við ríkislögreglustjóra og óskaði eftir frestun á brottflutningi. Ríkislögreglustjóri hafði þá samband við Guðrúnu Hafsteinsdóttur, þáverandi dómsmálaráðherra, og óskaði eftir því að hún tæki afstöðu. Guðrún ákvað að fresta brottflutningi svo hægt væri að ræða málið í ríkisstjórn.

Guðrún viðurkenndi í kjölfarið að hún hefði ekki haft lagaheimild til að stíga inn í mál Yazans, en drengurinn og foreldrar hans fengu í kjölfarið alþjóðlega vernd.

Sjá einnig: Gagnrýna harðlega framgöngu Guðmundar Inga í máli Yazans

Noorina Khalikyar

Afganski læknirinn Noorina Khalikyar fékk ríkisborgararétt í desember árið 2023, en hún flúði Kabúl eftir valdatöku Talíbana árið 2021. Henni hafði áður verið neitað um alþjóðlega vernd á þeim grundvelli að hún væri þegar komin með stöðu flóttamanns í Rúmeníu. Þegar Noorina fékk ríkisborgararétt birti hún mynd af sér með Guðrúnu Hafsteinsdóttur og þingmanninum Birgi Þórarinssyni. Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, vísaði til þessarar myndar í ræðu á Alþingi í vikunni þar sem hún furðaði sig á gagnrýni stjórnarandstöðunnar í máli Oscars enda hafi Guðrún greinilega enga athugasemd gert við það þegar Alþingi veitti Noorinu ríkisborgararétt þó svo að hún hefði áður fengið synjun í stjórnsýslunni.

Pussy Riot

Tveir liðsmenn gjörninga- og aðgerðarhópsins Pussy Riot fengu íslenskan ríkisborgararétt árið 2023 að tillögu allsherjar- og menntamálanefndar. Þetta voru þær Mariia Alekhina og Lucy Schtein. Báðar höfðu flúið frá Rússlandi með ævintýralegum hætti en sú síðarnefnda hafði verið í stofufangelsi. Þáverandi formaður allsherjar- og menntamálanefndar, Bryndís Haraldsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokks, sagði við fréttastofu RÚV í framhaldinu að einhugur hafi verið meðal nefndarmanna að veita liðskonu Pussy Riot ríkisborgararétt og líta mætti á þá ákvörðun sem pólitíska yfirlýsingu enda hafi sveitin mótmælt innrás Rússa í Úkraínu harðlega.

John Grant

Tónlistarmaðurinn John William Grant fékk ríkisborgararétt í gegnum Alþingi í júní árið 2022 en hann hafði lengi starfað hérlendis og unnið mikið með íslenskum listamönnum.

Damon Albarn

Tónlistarmaðurinn Damon Albarn fékk ríkisborgararétt árið 2021 að tillögu allsherjar- og menntamálanefndar. Áður en ríkisborgararétturinn var veittur heimsótti Albarn Alþingi og tók þar þáverandi formaður allsherjar- og menntamálanefndar, Páll Magnússon þingmaður Sjálfstæðisflokksins, á móti honum. Albarn hafði verið með annan fótinn hér á landi í tæpan aldarfjórðung.

Nargiza Salimova

Hælisleitandinn Nargiza Salimova fékk ríkisborgararétt árið 2018. Hún hafði flúið frá Kirgistan og lék grunur á að hún væri fórnarlamb mansals. Eiginmaður hennar hvarf úr haldi lögreglu í heimalandinu og hún upplifði ofsóknir eftir að hún fór að grennslast fyrir um afdrif hans. Hún kom til Íslands með aðstoð smyglara sem hún sagði hafa tekið vegabréf hennar. Rétt áður en hún fékk ríkisborgararétt hafði hún fengið tilkynningu um að henni yrði vísað úr landi. Brottflutningur var áformaður aðfaranótt 12. júní en ekkert varð úr því þar sem brottflutningi var frestað þar sem líkur þóttu á að Alþingi myndi veita henni ríkisborgararétt morguninn eftir.

Pepaj-fjölskyldan

Alþingi veitti tveimur albönskum- fjölskyldum ríkisborgararétt í desember árið 2015, en þeim hafði verið vísað úr landi fyrr í sama mánuði. Annars vegar var um að ræða Pepaj-fjölskylduna sem leitaði eftir hæli á Íslandi vegna veikinda drengsins Kevi sem glímdi við slímseigjusjúkdóm. Hins vegar var um að ræða Phellup-fjölskylduna sem átti eins langveikt barn. Umboðsmaður Alþingis óskaði í framhaldinu eftir upplýsingum frá Útlendingastofnun, en afgreiðsla stofnunarinnar á hælisumsóknum fjölskyldnanna hafði verið harðlega gagnrýnd. Útlendingastofnun taldi sig þó hafa farið að lögum í einu og öllu og sagðist ekki taka afstöðu til ákvörðunar Alþingis um að veita fjölskyldunum ríkisborgararétt enda falli störf þingsins alfarið utan verksviðs stofnunarinnar.

Mál fjölskyldnanna höfðu verið áberandi í þjóðfélagsumræðunni en múrarameistarinn Hermann Ragnarsson barðist baki brotnu fyrir því að fjölskyldurnar fengju að vera áfram á Íslandi.

Sjá einnig: Tilfinningahlaðin heimkoma: Þakka íslensku þjóðinni fyrir stuðninginn

Sonur staðgöngumóður

Árið 2010 fékk nýfæddur drengur ríkisborgararétt, en mál hans vakti gífurlega athygli. Það var indversk staðgöngumóðir sem fæddi drenginn í Indlandi fyrir íslensk hjón en í kjölfarið fengu hjónin drenginn ekki viðurkenndan sem íslenskan ríkisborgara, enda var staðgöngumæðrun ólögleg hér á landi. Málið kom fyrir allsherjarnefnd Alþingis sem ákvað að veita drengnum ríkisborgararétt, en íslensku foreldrar drengsins höfðu þá setið föst í Indlandi með drenginn í rúman mánuð.

Tengdadóttir ráðherra

Árið 2007 veitti Alþingi 22 ára gamalli stúlku frá Gvatemala ríkisborgararétt. Stúlkan var unnusta sonar Jónínu Bjartmarz, þáverandi umhverfisráðherra, og við veitingu ríkisborgararéttar var hún skráð með lögheimili á heimili ráðherrans. Þáverandi formaður allsherjarnefndar, Bjarni Benediktsson, sagði ekkert athugavert við að stúlkunni hafi verið veittur ríkisborgararéttur og sagði engan nefndarmannanna hafa vitað af þessum tengslum stúlkunnar við ráðherrann. Vissulega hafi stúlkan ekki uppfyllt skilyrði fyrir veitingu ríkisborgararéttar en það sama eigi við um nær alla sem sækja um ríkisborgararétt til allsherjarnefndar. Stúlkan var ekki hælisleitandi heldur hafði hún dvalið í 15 mánuði á Íslandi á grundvelli dvalarleyfis námsmanns.

Bobby Fischer

Skákmaðurinn Bobby Fischer hlaut íslenskan ríkisborgararétt árið 2005, en hann sat þá í fangelsi í Japan. Hann var á flótta á þessum tíma enda eftirlýstur í Bandaríkjunum fyrir að hafa virt að vettugi alþjóðlegar refsiaðgerðir gegn Júgóslavíu. Hann endaði í Japan en var hnepptur í fangelsi þegar vegabréf hans rann út. Þá sótti hann um landvistarleyfi hér á landi með bréfi til þáverandi utanríkisráðherra, Davíðs Oddssonar. Hann fékk í framhaldinu landvistarleyfi en Bandaríkin mótmæltu því og kröfðust þess að það yrði afturkallað. Ekki dugði landvistarleyfið til að fá Fischer framseldan til Íslands svo hann óskaði þá eftir ríkisborgararétti. Fyrst freistuðu stjórnvöld hér á landi þess að veita honum sérstakt útlendingavegabréf, en þegar í ljós kom að það dugði ekki heldur til ákvað Alþingi að veita ríkisborgararétt. Nokkrum dögum síðar var Fischer leystur úr haldi í Japan og kom til Íslands þar sem hann bjó til æviloka.

Dúndranúna

Handknattleiksmaðurinn kúbverski, Julián Duranona, fékk ríkisborgararétt árið 1996 að tillögu allsherjarnefndar, en hann hafði þá unnið hug og hjörtu Íslendinga og með ríkisborgararétt varð hann gjaldgengur í íslenska landsliðið.

Sjá einnig: Duranona sendir fallega kveðju til íslensku þjóðarinnar – Þykir mjög vænt um Ísland

Sambýliskona Errós

Listmálarinn Erró, eða Guðmundur Guðmundsson, greindi frá því í ævisögu sinni að hann hafi lent í vandræðum út af vegabréfi sambýliskonu sinnar, Vilai sem er frá Tælandi. Þau voru búsett í Frakklandi en í hvert sinn sem þau komu heim til Frakklands var Vilai tekin fyrir af franska vegabréfseftirlitinu. Erró fattaði að hann ætti um tvennt að velja, taka sér franskt ríkisfang og giftast sambýliskonu sinni, eða að sækja um íslenskan ríkisborgarrétt fyrir hana með íslensku vegabréfi. Hann langaði þó ekkert að gerast franskur og hafði eins heitið því að gifta sig aldrei aftur. Því ákvað hann að reyna að gera Vilai að Íslendingi.

„Ég bar mig upp við Einar Benediktsson þegar hann var sendiherra í París. Hann lofaði öllu fögru, en ekkert gerðist. Mér fannst það súrt í broti, því ég vissi af tælenskum stelpum sem fluttu til Íslands svo til beint úr vændishúsunum á Pattaya-strönd og fengu íslensk vegabréf með hraði. Ég gafst samt ekki upp og fór á fund næsta sendiherra, Haralds Kröyers. Hann brást við fljótt og vel og ráðfærði sig við Birgi Ísleif Gunnarsson, menntamálaráðherra, sem þá var staddur í París.

Hann lofaði að taka málið upp heima á Íslandi og stóð við orð sín. Gengið var frá öllum formsatriðum á nokkrum vikum og að því loknu var íslenskt vegabréf gefið út handa Vilai. Upp frá því hefur hún farið allra sinna ferða óáreitt.“

John Thors, skrifstofustjóri dómsmálaráðuneytisins, kannaðist við málið árið 1996 þegar hann ræddi við Helgarpóstinn og tók fram að Alþingi hefði verið beðið að gera þetta fyrir listamanninn enda þótti við hæfi að íslenski listamaðurinn frægi ætti konu sem einnig væri íslenskur ríkisborgari.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Húsfélagið í vanda vegna þess að einn „nískupúki“ stöðvar allt – „Hann mætir á enga húsfundi og vill aldrei staðfesta neinar framkvæmdir“

Húsfélagið í vanda vegna þess að einn „nískupúki“ stöðvar allt – „Hann mætir á enga húsfundi og vill aldrei staðfesta neinar framkvæmdir“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Egill lætur umdeildan fyrirlesara heyra það – „Hvílíkur endemis auli“

Egill lætur umdeildan fyrirlesara heyra það – „Hvílíkur endemis auli“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Flaug til Íslands með stútfullt kælibox af mat – „Þetta sparaði okkur stórfé“

Flaug til Íslands með stútfullt kælibox af mat – „Þetta sparaði okkur stórfé“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þinghald lokað í máli Yms – Banaði móður sinni með 22 stungum

Þinghald lokað í máli Yms – Banaði móður sinni með 22 stungum