fbpx
Föstudagur 06.júní 2025
Fréttir

Íslenskur iðnaðarmaður stóð ekki við sitt – Fór undan í flæmingi en viðurkenndi loks hvað bjó að baki

Jakob Snævar Ólafsson
Miðvikudaginn 4. júní 2025 09:00

Mynd úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa hefur lagt fyrir iðnaðarmann að endurgreiða viðskiptavini. Viðskiptavinurinn hafði greitt iðnaðarmanninum hluta af umsaminni upphæð fyrir að smíða glugga og setja hann upp í fasteign hins fyrrnefnda. Þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir mætti iðnaðarmaðurinn aldrei á staðinn til að setja upp gluggann. Hann fór lengi vel undan í flæmingi og gaf upp ýmsar ástæður en viðurkenndi loks að vegna hans eigin mistaka hefði ekki tekist að hefja smíði gluggans. Samþykkti hann að endugreiða upphæðina en stóð heldur ekki við það.

Iðnaðarmaðurinn veitti engin andsvör vegna kæru viðskiptavinarins þrátt fyrir að hafa fengið send þrjú ábyrgðarbréf frá nefndinni með boði um slíkt, það síðasta með stefnuvotti.

Samkvæmt úrskurði nefndarinnar óskaði viðskiptavinurinn eftir því í júlí 2024 að iðnaðarmaðurinn myndi smíða og setja upp einn tvískiptan glugga í fasteign hans. Bauð iðnaðarmaðurinn alls 180.000 krónur í verkið og skyldi það unnið í kringum verslunarmannahelgi árið 2024. Að beiðni iðnaðarmannsins millifærði viðskiptavinurinn alls 75.000 krónur inn á reikning hans vegna efniskaupa, í lok júlí 2024. Um 10 dögum síðar upplýsti iðnaðarmaðurinn viðskiptavininn um að gler í gluggann væri tilbúið og að hann myndi setja hann upp 13. ágúst.

Endalaus afboðun

Þegar sá dagur rann upp afboðaði iðnaðarmaðurinn sig hins vegar og bar við annríki. Í kjölfarið áttu málsaðilar í reglulegum samskiptum í gegnum smáskilaboð þar sem viðskiptavinurinn margítrekaði ósk sína um að iðnaðarmaðurinn myndi hefja verkið enda væri brýn þörf á því. Iðnaðarmaðurinn lofaði nokkrum sinnum að standa við það en frestaði því alltaf. Afsakanirnar voru ýmist að veður væri óhagstætt, hann væri veikur eða upptekinn við vinnu í öðrum verkefnum.

Þegar komið var fram í október 2024 óskaði viðskiptavinurinn eftir því að iðnaðarmaðurnn myndi afhenda honum gluggann, annars endurgreiða sér 75.000 króna innborgunina. Síðar þennan sama dag upplýsti iðnaðarmaðurinn viðskiptavininn um að hann hefði gert mistök við pöntun á glerinu sem átti að fara í gluggann og þar af leiðandi hefði hann aldrei hafið smíðina. Féllst iðnaðarmaðurinn á að endurgreiða innborgunina en stóð ekki við það, þrátt fyrir ítrekanir, og þá leitaði viðskiptavinurinn til nefndarinnar.

Níu mánuðir

Í niðurstöðu kærunefndar vöru- og þjónustukaupa segir að hún byggi á sjónarmiðum viðskiptavinarins og gögnum frá honum þar sem iðnaðarmaðurinn hafi ekki veitt nein andsvör. Segir nefndin að af gögnum málsins sé ljóst að iðnaðarmaðurinn hafi á þeim níu mánuðum sem liðnir eru, frá því að hann sagðist ætla að vinna verkið, hvorki veitt umsamda þjónustu né endurgreitt innborgunina þrátt fyrir að hafa fallist á það.

Nefndin segir að krafa viðskiptavinarins um endurgreiðslu sé ígildi riftunar á samningi hans við iðnaðarmanninn og í ljósi þess að sá síðarnefndi hafi ekki staðið við hann sé riftunin heimil samkvæmt lögum. Viðskiptavinurinn eigi þar með rétt á fullri endurgreiðslu á umræddum 75.000 krónum og beri iðnaðarmanninum að endurgreiða honum þessa upphæð.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Mörg hús fyrir hælisleitendur standa ónotuð – „Sóun á almannafé skattgreiðenda“

Mörg hús fyrir hælisleitendur standa ónotuð – „Sóun á almannafé skattgreiðenda“
Fréttir
Í gær

Pútín og nánustu samstarfsmenn ósammála um Úkraínu

Pútín og nánustu samstarfsmenn ósammála um Úkraínu
Fréttir
Í gær

Skora á Kópavogsbæ að slaka á í hækkun leikskólagjalda – Nú þegar með hæsta gjaldið á landinu

Skora á Kópavogsbæ að slaka á í hækkun leikskólagjalda – Nú þegar með hæsta gjaldið á landinu
Fréttir
Í gær

Blindfullur flugdólgur olli truflun í flugi frá Keflavík til Gdansk

Blindfullur flugdólgur olli truflun í flugi frá Keflavík til Gdansk
Fréttir
Í gær

Björgólfur Thor rýfur þögnina og sakar RÚV um rangfærslur – „Misvísandi og ærumeiðandi“

Björgólfur Thor rýfur þögnina og sakar RÚV um rangfærslur – „Misvísandi og ærumeiðandi“
Fréttir
Í gær

Sanna skýtur á Morgunblaðið – „Þykir mér miður að sjá að verið sé að draga upp mynd af einhverju sem á við engin rök að styðjast“

Sanna skýtur á Morgunblaðið – „Þykir mér miður að sjá að verið sé að draga upp mynd af einhverju sem á við engin rök að styðjast“