fbpx
Miðvikudagur 04.júní 2025
Fréttir

Íslendingar á Spáni kvarta undan undarlegum betlpóstum frá fyrrverandi ræðismanni – „Kærastan mín var rænd á flugvellinum“

Ágúst Borgþór Sverrisson
Mánudaginn 2. júní 2025 12:30

Manuel Zeron Sanchez Mynd/Fréttablaðið/Anton Brink

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrir nokkrum dögum var umræða í FB-hópi íslenskra íbúa á Spáni um undarlega framgöngu fyrrverandi kjörræðismanns Íslands á Orihuela Costa, sem nær yfir Alicante og Murcia, þar sem hann biður fólk um fjárhagsaðstoð vegna skyndilegrar neyðar.

Í póstinum, sem sendur var á allnokkra Íslendinga, segir ræðismaðurinn fyrrverandi, Manuel Zeron Sanchez, að kærasta hans hafi verið rænd á flugvellinum í Varsobia. Tekinn hafi verið af henni sími og fartölva, meðal annars. Hún þurfi 1.500 evrur undir eins til að greiða fyrir sjúkraþjónustu og kaupa sér nýjan síma. Fjölskylda hennar sé rík og muni endurgreiða lánið:

 

Nokkrir Íslendingar segjast í umræðum á Facebook hafa fengið svona skilaboð frá kjörræðismanninum fyrrverandi. Hann hljóti að hafa verið hakkaður, segja sumir, en aðrir segja að þetta sé hann sjálfur að betla peninga. Kona ein, sem DV ræddi við, segist hafa sent Manuel skilaboð á Whatsapp og þar hafi hann staðfest að þetta væri hann sjálfur sem sendi út þessi skilaboð. Hún segist hins vegar ekki hafa sannanir fyrir því að það hafi í raun verið hann sem var að svara henni á Whatsapp.

DV hafði samband við Manuel Zeron Sanchez vegna málsins og spurði hann hvort hann væri sjálfur að senda þessi skilaboð eða hvort hann hefði verið hakkaður. Manuel sagðist hafa verið hakkaður en fór ekki nánar út í það og var afar fáorður í þessu stutta símtali.

Lét af störfum skyndilega í fyrra

Manuel er sagður hafa verið vinsæll kjörræðismaður meðal Íslendinga en hann lét mjög skyndilega af störfum í október 2024. DV greindi frá því:

„Kjörræðismaður Íslands á Orihuela Costa, Manuel Zeron Sanchez, hefur látið af störfum. Af þeim sökum hefur kjörræðisskrifstofu Íslands á staðnum verið lokað. Um er að ræða Alicante og Murcia svæðið þar sem þúsundir Íslendinga búa eða dvelja á hverjum tíma.

Utanríkisráðuneytið greinir frá þessu.

„Utanríkisráðuneytið vinnur að skjótri lausn mála, enda margir íslenskir ríkisborgarar búsettir á svæðinu. Athygli er vakin á því að starfsmaður utanríkisráðuneytisins verður að störfum á svæðinu meðan unnið er að breytingum á fyrirsvari ræðismála,“ segir í tilkynningu ráðuneytisins.

Kemur fram að aðstaða til utankjörfundaratkvæðagreiðslu til alþingiskosninga verði tryggð. Auglýst verði sérstaklega þegar nær dregur hvernig henni verður háttað, en hún hefst 7. nóvember.

Sendiráð verður opnað í Madríd á næsta ári. Hafa skipulagsbreytingar á ræðismálum á Costa Blanca svæðinu verið í undirbúningi samhliða opnuninni.

Erfitt starf

Manuel, sem er spænskur hagfræðingur, var ráðinn ræðismaður árið 2017 og er vel þekktur á meðal Íslendinga á svæðinu. En hann fékk starfið eftir að hafa kynnst íslenska samfélaginu í gegnum viðskiptafélaga.

Manuel var í viðtali við Fréttablaðið árið 2021 í tilefni af því að hann fékk fálkaorðuna. Þar greindi hann meðal annars frá því að hafa í mörg skipti þurft að hafa aðkomu að því að koma Íslendingum heim, bæði lifandi og látnum, bera kennsl á og hafa uppi á nánustu ættingjum. Einnig tilkynna þeim um andlát.

Einnig greindi hann frá því að mest hefði fengið á hann að koma börnum úr erfiðum aðstæðum, í samstarfi við félagsþjónustu og lögreglu á Spáni og Íslandi. Sem og að fást við íslenska glæpamenn, sem eru sumir búsettir í ónefndum bæ í umdæminu. Þá lýsti hann ástandinu þegar Covid faraldurinn hófst sem stríðsástandi. En Spánn fór mjög illa út úr fyrstu bylgju Covid og margir aldraðir Íslendingar á svæðinu.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Neydd til að mæta ofbeldismanni sínum í dómsal – „Þegar þú drepst þá mun ég brosa“

Neydd til að mæta ofbeldismanni sínum í dómsal – „Þegar þú drepst þá mun ég brosa“
Fréttir
Í gær

Ásgeir missti 2 syni með 12 klukkustunda millibili – „Ef eitthvað á að hugga mann þá á það að vera það að þetta leiði til einhvers og bjargi öðrum lífum“

Ásgeir missti 2 syni með 12 klukkustunda millibili – „Ef eitthvað á að hugga mann þá á það að vera það að þetta leiði til einhvers og bjargi öðrum lífum“