Konu brá í brún þegar hún sá ungan dreng sveifla hnífi í miðbæ Hafnarfjarðar fyrir skemmstu. Fullorðin fólk var í kring en enginn sagði neitt við drenginn.
Konan greinir frá þessu á samfélagsmiðlum. Það er atviki sem hafi gerst fyrir nokkrum dögum nálægt Vesturbæjarís í miðbæ Hafnarfjarðar.
„Einn þeirra, líklega um 10 til 12 ára gamall, var með hníf og var að sveifla honum og leika sér með hann. Í kringum hann voru fleiri yngri börn, kannski 5 eða 6 ára, sem voru að fylgjast með og sum virtust jafnvel bíða í röð,“ segir konan. „Það voru margir fullorðnir í kring en enginn sagði neitt.“
Var henni augljóslega brugðið við að verða vitni að þessu. Mikil umræða hefur verið um hnífaburð ungmenna á undanförnum misserum, hnífaburð sem hefur leitt af sér hörmungar.
„Ég verð að viðurkenna að mér fannst þetta mjög óþægilegt og áhyggjuefni,“ segir konan. „Þetta er einfaldlega mjög hættulegt. Börn á þessum aldri skilja oft ekki hvaða afleiðingar svona hlutur getur haft. Þau sjá kannski hníf sem einhvers konar „svalt dót“ og átta sig ekki á því hversu auðvelt er að einhver slasist, sérstaklega þessi yngri börn sem voru rétt hjá.“
Segist hún ekki hafa vitað hvernig ætti að bregðast við í þessum aðstæðum. Hvort hún hefði átt að hringja á lögregluna eða segja einhverjum öðrum frá þessu. Segist hún vona að foreldrar fylgist betur með hvað börnin þeirra séu að gera og að skólarnir séu vakandi fyrir svona hlutum.
„Hvað ef barn í skóla verður fyrir hótunum eða þvingun frá barni með hníf? Það er kannski ekki komið upp enn, en hættan er raunveruleg,“ segir hún.
Veltir hún því einnig fyrir sér hvernig börn verða sér út um hnífa. Það er hvort verslanir séu að selja börnum hnífa eða hvort foreldrar séu ekki að huga að ábyrgð sinni varðandi hnífa á heimilinu.
„Við ættum ekki að líta á þetta sem saklausan leik. Börn læra hvert af öðru og herma eftir. Ef eitt barn gengur með hníf gæti annað barn haldið að það sé í lagi líka. Þannig myndast hættuleg hringrás sem verður erfið að stöðva ef við grípum ekki inn í,“ segir hún. „Ísland hefur alltaf verið öruggt samfélag og við þurfum að standa saman til að halda því þannig. Ef við látum svona fram hjá okkur fara, getur hættulegur búnaður eins og hnífar endað í höndum barna. Og þá er hættan farin að snerta okkur öll.“