Sósíalistar á Íslandi hafa ekki átt sjö daganna sæla, að minnsta kosti ekki þeir sem eru eða voru flokksbundnir Sósíalistaflokk Íslands sem er rækilega klofinn í tvær fylkingar. Hallarbylting átti sér stað á dögunum þar sem nýir aðilar tóku taumana eftir harðar innanbúðardeilur sem einkum fram á opnum hópi flokksins á Facebook, fyrir allra augum.
Nú velta margir fyrir sér stöðu Samstöðvarinnar. Ritstjóri miðilsins er Gunnar Smári Egilsson, einn af stofnendum Sósíalistaflokksins, og hafði miðillinn verið rekinn í nánu samstarfi við stjórnmálaflokkinn. Meðal annars hafði hluti af styrk sem flokkurinn fékk frá hinu opinbera runnið til Samstöðvarinnar, nokkuð sem hefur nú orðið töluvert bitbein milli stríðandi fylkinga flokksins.
Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur segir það orka tvímælis að stjórnmálaflokkur reki fjölmiðil fyrir styrktarfé úr vösum skattgreiðenda. Íslensk lög girði ekki fyrir slíkt samstarf flokks og fjölmiðils en það þurfi þó að koma skýrt fram við birtingu efnis að það sé kostað af stjórnmálaflokki.
Haukur skrifar á Facebook:
„Þannig eiga áhorfendur rétt á að vita að um pólitíska tjáningu ákveðins stjórnmálaflokks sé að ræða – og varðar sektum að gera ekki grein fyrir því. Þannig að ef Samstöðin er rekin fyrir fé sem ætlað er til stjórnmálastarfsemi þarf hún að gera áhorfendum grein fyrir því að útsendingin sé efni frá Sósíalistaflokknum. Ég hef ekki orðið var við að hún geri það, miklu heldur segist stöðin vera almennur fjölmiðill sem leitar eftir kostun áskrifenda/styrktaraðila.“
Samstöðin þurfi að ákveða hvort miðillinn sé á vegum flokksins, og merkja þá efni sitt þannig, eða hvort um sé að ræða almennan fjölmiðil – en þá geti miðillinn ekki lengur þegið styrki frá Sósíalistaflokknum.
Gunnar Smári svarar færslunni og bendir á að Samstöðin sé í eigu félags sem kallast Alþýðufélagið. Í því félagi sé fjölmenn stjórn sem meðal annars er skipuð Einari Má Guðmundssyni rithöfundi, Guðmundi Hrafni Arngrímssyni formanni Leigjendasamtakanna, Vigdísi Grímsdóttur rithöfundi, Sólveigu Önnu Jónsdóttur formanni Eflingar og prófessorunum Ólínu Kjerúlf Þorvarðardóttur og Þorvaldi Gylfasyni.
Eins bendir Gunnar Smári á að Samstöðin fær aðeins hluta af veltu sinni í styrk frá Sósíalistaflokknum og það hlutfall sé sífellt að minnka.
„Veltan í fyrra var 64,9 m.kr. Sósíalistaflokkurinn lánaði til Samstöðvarinnar í fyrra um 12 m.kr, víkjandi lán sem má breyta í hlutafé. Þetta framlag var 18% af veltu ársins. Hlutfallið verður enn lægra í ár, þar sem aðrar tekjur hafa aukist. Og Samstöðin mun örugglega lifa það af þótt ný forysta í Sósíalistaflokknum hætti að styðja við rekstur hennar. Samstöðin nýtur fádæma velvildar í samfélaginu og ég trúi að fólk muni vilja tryggja áframhaldandi rekstur hennar.“
Gunnar Smári bendir á að fyrir nokkrum misserum hafi sérstökum flokksblöðum verið haldið úti, þó að þau væru ekki beint undir stjórn flokkanna. Haukur svarar því og bendir á að það hafi verið fyrir tíð laga um starfsemi stjórmálasamtaka.
„En flokkurinn á ekki Samstöðina,“ segir Gunnar Smári. Miðillinn hafi frá upphafi verið eign Alþýðufélagsins og byggður upp með stuðningi áskrifenda, sjálfboðaliða og fleiri. „Styrkurinn frá flokknum hefur vissulega hjálpað, en það er fráleitt að líta svo á að Sósíalistaflokkurinn geti tekið Samstöðina yfir, það er lagalega ómögulegt og stenst ekkert siðferði.“
Gagnrýnandinn Jón Viðar Jónsson blandar sér líka í umræðuna og sakar Gunnar Smára um að beita bókhaldsklækjum til að verja það að Samstöðin hafi verið og sé líklega enn rekin fyrir skattpeninga sem með réttu hefðu átt að renna til stjórnmálastarfsemi.
„Annars væri forvitilegt að vita hversu stórt hlutfall af rekstrarkostnaði stöðvarinnar á síðasta ári og þessu er greitt með áskriftartekjum,“ segir gagnrýnandinn sem Gunnar Smári sakar á móti um að kunna ýmislegt fyrir sér, en bókhald sé ekki einn af hans hæfileikum.
„Þetta eru engar bókhaldsflækjur. Áskrifendur og stuðningsfólk greiddu tæplega 50 m.kr. í fyrra, sem er 3/4 af veltu.“
Jón Viðar skrifar þá: „ Gunnar Smári beitir bókhaldsbrellum til að breiða yfir staðreyndir málsins, enda er það sjálfsagt þungbær tilhugsun fyrir hann að hin nýja forysta Sósíalistaflokksins komi nærri rekstri stöðvarinnar sem hann rekur eins og hún væri hans eign. Og það sýnir vel hversu veikur málstaður hans er þegar hann reynir að gera sig (og þetta svokallaða Alþýðufélag) breiðan með því að birta langan nafnalista yfir alls konar fínt og frægt fólk sem á að sitja í stjórn þess.“
Við þessu spyr Gunnar Smári hvers vegna Jón Viðar fagni því ekki að margir séu tilbúnir að styðja Samstöðina. „Hvað fær þig til að pósta svona leiðindum?“
Gagnrýnandinn tekur fyrir að vera með leiðindi. Samstöðin sé vissulega ágæt en þegar komi að stjórnmálum sé augljós vinstri slagsíða á miðlinum og Gunnar Smári sjálfur taki gjarnan eindregna afstöðu með þeim viðmælendum sem honum hugnast en hellir sér yfir á sem honum hugnast ekki.
„Það er líka oft áberandi hversu mjög þú heldur fram þínum skoðunum ef þú ert að tala við sérfræðinga sem þekkja öll málin miklu betur en þú. – En gott og vel. Þetta er allt aukaatriði. Aðalatriðið er hvernig hér er verið að fara með opinbert fé sem í þessu tilviki á að renna til að reka starfsemi eins stjórnmálaflokks.“
Rétt er að benda á að Samstöðin hefur eins fengið styrki sem sérstaklega var ætlað í rekstur fjölmiðils, svokallaðan rekstrarstuðning til einkarekinna fjölmiðla en styrkurinn á árinu 2024 nam tæplega 6,4 milljónum sem samkvæmt Gunnari Smára var tæplega 10 prósent af veltu síðasta árs. Samkvæmt fyrirtækjaskrá er Gunnar Smári skráður raunverulegur eigandi Alþýðufélagsins en forráðamaður er Eyjólfur Guðmundsson. Alþýðufélagið er skráð í fyrirtækjaskrá sem félagasamtök. Gunnar Smári er skráður eigandi Samstöðvarinnar og forráðamaður.