fbpx
Mánudagur 23.júní 2025
Fréttir

Brunarústirnar við Hvaleyrarbraut verða loksins rifnar nærri tveimur árum eftir brunann – „Það er alger skömm af þessu“

Kristinn H. Guðnason
Þriðjudaginn 6. maí 2025 12:00

Rústirnar hafa angrað nágranna. DV/KHG

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bæjarráð Hafnarfjarðar hefur samþykkt að taka yfir lóðina og brunarústir húss að Hvaleyrarbraut og hefja niðurrif. Íbúar hafa lengi kvartað yfir rústum hússins sem brann fyrir næstum tveimur árum síðan.

Fólki og dýrum bjargað

Sunnudaginn 20. Ágúst árið 2023 kviknaði eldur í stóru húsnæði að Hvaleyrarbraut 22 í Hafnarfirði. Húsið var byggt á sjötta áratugnum undir starfsemi fyrirtækisins Lýsis og mjöls og skráð sem iðnaðar og skrifstofuhúsnæði. Þegar eldurinn kom upp voru þar hins vegar einnig íbúðir fólks.

Eldurinn barst hratt á milli brunahólfa í húsinu og talið er að brunavarnir hafi ekki verið í lagi. Þegar eldurinn kom upp var fólk sofandi inni í húsinu, meðal annars dóttir konu sem kom æðandi inn til þess að vekja hana. Alls bjuggu 13 manns í húsinu og ekki var talið að um sakamál væri að ræða.

Allt fólk komst lifandi út úr húsinu en talið er að einhver dýr hafi drepist í brunanum en öðrum var bjargað. Til dæmis bjargaði slökkvilið ketti sem var fastur á þakinu. Í marga daga á eftir voru fulltrúar dýrabjörgunarfélagsins Dýrfinnu að störfum við að finna ketti fólks sem bjó í húsinu.

Lýti og vond lykt

Allar götur síðan hafa rústirnar staðið á sínum stað, innsiglaðar, en til lítillar prýði fyrir svæðið. En húsnæðið stendur fyrir neðan íbúðabyggðina að Skipalóni. Ekki nóg með að rústirnar væru lýti á umhverfinu þá var um tíma af þeim stæk lykt. Hafa Hafnfirðingar furðað sig á því að rústirnar standi þarna enn og sent kvartanir og fyrirspurnir inn til bæjarins.

Þrettán manns bjuggu í húsinu. DV/KHG

„Í ágúst eru liðin tvö ár frá brunanum!! Komin tími til að fjarlægja rústirnar!“ segir í umræðum íbúa um málið á dögunum.

Sjá einnig:

Eldur í iðnaðarhúsi í Hafnarfirði – Sjónarvottur sá mann hlaupa út úr húsinu

„Það er alger skömm af þessu. Það er ekki endalaust hægt að benda á aðra. Efast ekki um að lóðarverð geti staðið undir kostnaði,“ segir annar.

Taka lóðina til sín

Á fundi bæjarráðs Hafnarfjarðar á föstudag, 2. maí, var loks ákveðið að taka lóðina yfir og hefja niðurrif.

„Bæjarráð samþykkir að fylgja málinu eftir í samræmi við 6. gr. Í lóðarleigusamningi um lóðina þar sem gert er ráð fyrir að lóðin falli til bæjarins hafi húsnæðið eyðilagst og ekki verið byggt upp að nýju. Þá skal hreinsun lóðarinnar fara fram hið fyrsta,“ segir í bókuninni.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Brottrekinn flugmaður fær engar bætur: Ítrekuð hegðunarvandamál og drykkja – Reyndi að bjarga sér með umdeildri ADHD-greiningu

Brottrekinn flugmaður fær engar bætur: Ítrekuð hegðunarvandamál og drykkja – Reyndi að bjarga sér með umdeildri ADHD-greiningu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Íslenskar vegabréfsáritanir sagðar hafa verið misnotaðar

Íslenskar vegabréfsáritanir sagðar hafa verið misnotaðar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Lögreglan lýsir eftir manni

Lögreglan lýsir eftir manni
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Franska konan úrskurðuð í lengra gæsluvarðhald

Franska konan úrskurðuð í lengra gæsluvarðhald
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Harmleikurinn á Edition-hótelinu: Lögreglan hér á landi í sambandi við frönsku lögregluna

Harmleikurinn á Edition-hótelinu: Lögreglan hér á landi í sambandi við frönsku lögregluna
Fréttir
Fyrir 3 dögum

„Það var alltaf bíll sem kom einu sinni í mánuði um nótt og var svo farinn eldsnemma morguns“

„Það var alltaf bíll sem kom einu sinni í mánuði um nótt og var svo farinn eldsnemma morguns“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Hvarf Jóns Þrastar Jónssonar: Írskir lögreglumenn munu taka skýrslur af 35 manns hérlendis

Hvarf Jóns Þrastar Jónssonar: Írskir lögreglumenn munu taka skýrslur af 35 manns hérlendis
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Pétur sár út í Kristrúnu: Segir þúsundum Íslendinga hafa runnið kalt vatn milli skinns og hörunds við þessi orð hennar

Pétur sár út í Kristrúnu: Segir þúsundum Íslendinga hafa runnið kalt vatn milli skinns og hörunds við þessi orð hennar