Mikil spenna er fyrir formannskjör Sjálfstæðisflokksins á sunnudaginn og grunnt er orðið á því góða milli stríðandi fylkinga þeirra Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur og Guðrúnar Hafsteinsdóttur sem sækjast eftir vegtyllunni.
Jón Gunnarsson, fyrrum ráðherra, henti svo vænum skammti af olíu á eldinn sem logar í gær þegar hann steig fram og gagnrýndi Guðrúnu harðlega í Facebook-pósti. Þar sakaði hann eftirmann sinn í embætti dómsmálaráðherra um að eigna sér verk forvera sinna í ráðuneytinu og gera lítið úr starfi þeirra í viðtali við Spursmál á dögunum.
„Öflugur leiðtogi eignar sér ekki árangur annarra eða gerir lítið úr þeim sem á undan komu. Mér þykir í raun miður að skrifa hér á þessum vettvangi um þessi mál, en ekki er undan því komist að gera athugasemd við málflutning Guðrúnar Hafsteinsdóttur í þessari klippu sem hún deilir hér með opinberlega í aðdraganda formannskosninga í Sjálfstæðisflokknum. Hún hefur haldið því fram að ekkert hafi gerst í útlendingamálunum fyrr en hún steig inn í dómsmálaráðuneytið. Ekkert er fjarri lagi. Guðrún hefur í engu svarað persónulegum pósti mínum til hennar um þetta mál. Hún væri meiri manneskja með því að leiðrétta þetta með einhverjum hætti sjálf," skrifaði Jón í færslunni.
Í morgun birtist svo grein í Morgunblaðinu þar sem hann lýsti yfir stuðningi við Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur í embætti formanns.
Sendi skilaboðin á like-síðu Guðrúnar
Óhætt er að segja að færsla Jóns hafi fallið í grýttan jarðveg hjá fjölmörgum Sjálfstæðismönnum sem fara ófögrum orðum um Jón í athugasemdum undir færsluna.
„Jón Gunnarsson, þetta er svo grunnt og lélegt. Síðan hvenær hefur aldrað fólk eins og þú ekki getað hringt í fólk? Þetta aumkunarverða klíkuútspil þitt var síðasti naglinn í kistu Sjálfstæðisflokksins – það er alveg á hreinu,“ skrifar meðal annars einn netverji.
Fjölmargir hnýta einmitt í Jón fyrir að hringja ekki í Guðrúnu og ræða við hana um þessa skoðun sína. Annar bætir svo um betur og greinir frá því að Jón hafi sent skilaboðin á opinbera like-síðu Guðrúnar en ekki hana persónulega og herma heimildir DV hið sama.
Jón í varaformanninn
Talsvert hefur verið skrafað um það að Jón hyggist bjóða sig fram til varaformanns Sjálfstæðisflokksins og muni tilkynna það á landsfundinum. Nú þegar hafa Diljá Mist Einarsdóttir og Jens Garðar Helgason lýst yfir framboði til embættisins.
Óvíst er þó hvort að hið nýja útspil Jóns á Facebook geri honum mikið gagn í þeim slag.