fbpx
Þriðjudagur 16.desember 2025
Fréttir

Sindri Þór grunaður um fjárdrátt í starfi

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 23. janúar 2025 12:53

Sindri Þór. Mynd: Anton Brink

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sindra Þór Sigríðarsyni var nýlega sagt upp störfum hjá Tjarnarbíói, en hann hafði starfað þar um nokkurra ára bil, fyrst sem markaðsstjóri og síðar sem framkvæmdastjóri. Vísir greinir frá því að eftir að Sindra var sagt upp vaknaði grunur um hann hefði gerst sekur um fjárdrátt. Tjarnarbíó skoðar nú hvort málið verði kært til lögreglu.

Tjarnarbíó er óhagnaðardrifið leikhús við Tjarnargötu sem nýtur styrkja frá Reykjavíkurborg og er rekið í húsnæði á vegum borgarinnar.

Sindri Þór var áberandi í fjölmiðlum undanfarin ár eftir að tónlistarmaðurinn Ingólfur Þórarinsson, Ingó Veðurguð, kærði hann fyrir meiðyrði. Ingó hafði loks betur í nóvember árið 2023 þegar Landsréttur sneri við niðurstöðu héraðsdóms og gerði Sindra að greiða 900 þúsund krónur í miskabætur og dæmdi fimm ummæli sem Sindri lét falla á samfélagsmiðlum dauð og ómerkt.

Sjá einnig:Ingó lagði Sindra í Landsrétti – Miskabætur og ummælin dæmd dauð og ómerk

Athafnamaðurinn Sverrir Einar Eiríksson hafði líka kært Sindra fyrir meiðyrði en þar hafði Sindri betur.

Sjá einnig:Sverrir tapaði meiðyrðamáli en greiðir Sindra ekki málskostnað – „Menn af því sauðahúsi komast upp með að misnota dómskerfið“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Sakar Sjálfstæðismenn um hræsni og segir að af öllum lygum stjórnarandstöðunnar sé þessi sú svæsnasta

Sakar Sjálfstæðismenn um hræsni og segir að af öllum lygum stjórnarandstöðunnar sé þessi sú svæsnasta
Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

„Við vorum bara litlir hræddir strákar“

„Við vorum bara litlir hræddir strákar“
Fréttir
Í gær

Fór inn í kvennabúningsklefa í Sundhöllinni og handlék kynfæri sín fyrir framan stúlku í sturtu

Fór inn í kvennabúningsklefa í Sundhöllinni og handlék kynfæri sín fyrir framan stúlku í sturtu
Fréttir
Í gær

Hundur Margrétar lifir enn – „Mér er haldið í hengingaról“

Hundur Margrétar lifir enn – „Mér er haldið í hengingaról“
Fréttir
Í gær

Harpa hvetur fólk til að sleppa hamborgarhryggnum um jólin

Harpa hvetur fólk til að sleppa hamborgarhryggnum um jólin
Fréttir
Í gær

Morðið á Rob Reiner og eiginkonu hans – „Fjölskyldumeðlimur“ yfirheyrður

Morðið á Rob Reiner og eiginkonu hans – „Fjölskyldumeðlimur“ yfirheyrður
Fréttir
Í gær

Þegar lífið fer á bið á „bestu árum ævinnar“

Þegar lífið fer á bið á „bestu árum ævinnar“
Fréttir
Í gær

„Berklar eyddu vonum fólks, eyðilögðu tilhugalíf og ungar fjölskyldur syrgðu“

„Berklar eyddu vonum fólks, eyðilögðu tilhugalíf og ungar fjölskyldur syrgðu“