fbpx
Þriðjudagur 16.desember 2025
Fréttir

Skora á öll starfandi flugfélög að neita að flytja Yazan úr landi

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 22. ágúst 2024 08:33

Yazan Tamimi. Mynd/Skjáskot RÚV

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Samtökin No Borders Iceland hafa skorað á öll starfandi flugfélög á Íslandi að neita því að flytja hinn ellefu ára gamla Yazan Tamimi úr landi. Tamimi er frá Palestínu og glímir við vöðvarýrnunarsjúkdóminn Duchenne.

Í yfirlýsingu frá samtökunum kemur fram að lífslíkur þeirra sem ekki fá meðferð við sjúkdómnum sé um nítján ár og það eitt að vera fluttur upp í flugvél geti orðið honum að bana.

Vísað er í læknisvottorð Yazan þar sem fram kemur að rof á þeirri þjónustu sem hann fær geti verið lífshættulegt og stytt ævi hans. Þar kemur einnig fram að 30% drengja með Duchenne-vöðvarýrnun deyja í kjölfarið á falli eða hnjaski. Fagfélög á borð við ÖBÍ, Þroskahjálp, Einstök börn og Duchenne-samtökin hafa fordæmt yfirvofandi brottvísun.

„Ekkert flugfélag sem státar sig af samfélagslegri ábyrgð ætti að sætta sig við það að framkvæma illvirki á borð við það að senda langveikt og dauðvona barn úr landi og á götuna á Spáni þar sem það verður, án dvalarleyfis og læknisþjónustu. Þetta er ekki eitthvað sem við getum látið bjóða okkur. Að öllu óbreyttu á Yazan aðeins örfá ár eftir ólifuð,“ segir í yfirlýsingu No Borders Iceland.

„Að lokum vill No Borders Iceland árétta það að öll þau flugfélög og það lögreglufólk sem tekur þátt í brottvísun Yazan eru jafn meðsek í því ódæðisverki og sjálfir ráðamenn, við höfum öll okkar val um að standa upp og gera það sem er rétt.  Við hvetjum öll flugfélög til þess að velja mannúð og samfélagslega ábyrgð og vonum að bæði lögreglan og stjórnvöld sjái sóma sinn í að gera það líka, jafnvel þótt það væri ekki af fyrra bragði. Yazan á heima hér,“ segir enn fremur í yfirlýsingunni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Sakar Sjálfstæðismenn um hræsni og segir að af öllum lygum stjórnarandstöðunnar sé þessi sú svæsnasta

Sakar Sjálfstæðismenn um hræsni og segir að af öllum lygum stjórnarandstöðunnar sé þessi sú svæsnasta
Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

„Við vorum bara litlir hræddir strákar“

„Við vorum bara litlir hræddir strákar“
Fréttir
Í gær

Fór inn í kvennabúningsklefa í Sundhöllinni og handlék kynfæri sín fyrir framan stúlku í sturtu

Fór inn í kvennabúningsklefa í Sundhöllinni og handlék kynfæri sín fyrir framan stúlku í sturtu
Fréttir
Í gær

Hundur Margrétar lifir enn – „Mér er haldið í hengingaról“

Hundur Margrétar lifir enn – „Mér er haldið í hengingaról“
Fréttir
Í gær

Harpa hvetur fólk til að sleppa hamborgarhryggnum um jólin

Harpa hvetur fólk til að sleppa hamborgarhryggnum um jólin
Fréttir
Í gær

Morðið á Rob Reiner og eiginkonu hans – „Fjölskyldumeðlimur“ yfirheyrður

Morðið á Rob Reiner og eiginkonu hans – „Fjölskyldumeðlimur“ yfirheyrður
Fréttir
Í gær

Þegar lífið fer á bið á „bestu árum ævinnar“

Þegar lífið fer á bið á „bestu árum ævinnar“
Fréttir
Í gær

„Berklar eyddu vonum fólks, eyðilögðu tilhugalíf og ungar fjölskyldur syrgðu“

„Berklar eyddu vonum fólks, eyðilögðu tilhugalíf og ungar fjölskyldur syrgðu“