fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Fréttir

Ekki næst í mann sem tók við tveimur milljónum í reiðufé

Ágúst Borgþór Sverrisson
Þriðjudaginn 26. mars 2024 11:15

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Manni sem ákærður er fyrir peningaþvætti hefur verið birt fyrirkall og ákæra í Lögbirtingablaðinu, þar sem ekki næst í manninn. Fyrirtaka verður í máli mannsins 2. maí næstkomandi við Héraðsdóm Reykjaness. Í fyrirkallinu segir:

„Ákærði er kvaddur til að koma fyrir dóm, hlýða á ákæru, halda uppi vörnum og sæta dómi. Sæki ákærði ekki þing, við þingfestingu máls eða á síðari stigum þess, má hann búast við því að fjarvist hans verði metin til jafns við það að hann viðurkenni að hafa framið brot það sem hann er ákærður fyrir og dómur verði lagður á málið að honum fjarstöddum. Birtingarfrestur er einn mánuður.“

Maðurinn, sem er Pólverji, fæddur árið 1981, var handtekinn í Flugstöð Leifs Eiríkssonar þann 16. september 2023, er hann var á leið í flug til Varsjár í Póllandi. Í fórum sínum hafði hann rétt tæplega tvær milljónir króna í reiðufé. Er hann ákærður „fyrir peningaþvætti með því að hafa á tímabilinu 2. desember 2023 til 4. desember 2023 tekið við samtals kr. 1.990.000 í reiðufé frá óþekktum aðila eða aðilum en ákærða gat ekki dulist að um væri að ræða ávinning af sölu og dreifingu fíkniefna og eftir atvikum öðrum refsiverðum brotum,“ eins og segir í ákæru.

Ennfremur segir í ákærunni:  „Með háttsemi sinni móttók ákærði ávinning af refsiverðum brotum, geymdi ávinninginn, flutti og leyndi ávinningnum og upplýsingum um uppruna, eðli, staðsetningu og ráðstöfun hans.“

Héraðssaksóknari krefst þess að maðurinn verði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar. Þá er þess krafist að féð sem lögreglan tók af manninum og haldlagði verði gert formlega upptækt og varðveitt sem innistæða á bankareikningi Lögreglustjórans á Suðurnesjum.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Spáir ekki dropa úr lofti í Reykjavík fyrr en í maí – Sumarið lítur sérstaklega vel út

Spáir ekki dropa úr lofti í Reykjavík fyrr en í maí – Sumarið lítur sérstaklega vel út
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Stofna góðgerðarfélag til minningar um Þuríði Örnu – Blásið til tónleikaveislu 1. maí

Stofna góðgerðarfélag til minningar um Þuríði Örnu – Blásið til tónleikaveislu 1. maí