fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Pútín gaf Kim Jong-un veglega gjöf á dögunum

Pressan
Þriðjudaginn 20. febrúar 2024 09:30

Pútín og Kim Jong Un eru mestu mátar.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vladimír Pútín Rússlandsforseti gaf Kim Jong-un, einræðisherra Norður-Kóreu, veglega gjöf á dögunum. Um var að ræða splunkunýja bifreið sem framleidd er í Rússlandi en ekki liggur fyrir af hvaða tegund bifreiðin er.

Ríkisfjölmiðill Norður-Kóreu greinir frá þessu að því er fram kemur í frétt AP-fréttaveitunnar.

Átti gjöfin að vera til marks um vináttu leiðtoganna tveggja og gott samband Rússlands og Norður-Kóreu. Efnahagsþvinganir eru í gildi gagnvart Norður-Kóreu  vegna kjarnorkuáætlunar yfirvalda og kemur fram í frétt AP að gjöfin gæti verið brot á samþykktum Sameinuðu þjóðanna.

Í frétt AP kemur fram að Kim Yo Jong, systri einræðisherrans, og annar ónafngreindur embættismaður, hafi veitt gjöfinni viðtöku á sunnudag.

Norður-Kórea og Rússland hafa átt í ríkum samskiptum síðustu mánuði, eða allt síðan Kim heimsótti Rússland í september á síðasta ári og hitti þar meðal annars Pútín.

Í þeirri heimsókn fékk Kim meðal annars að setjast aftur í Aurus Senat-limmósínu Pútíns en um er að ræða fyrstu lúxusbílategundina sem framleidd er í Rússlandi.

Kim Jong-un er mikill bílaáhugamaður og er hann sagður eiga glæsilegt safn lúxusbifreiða, meðal annars frá Evrópu, sem smyglað hefur verið til landsins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”