fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Samkeppniseftirlitið hefur tilkynnt afurðastöðvum að samkeppnislög gildi um samstarf og samruna þeirra

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 19. nóvember 2024 15:42

Mynd: Vefur Samkeppniseftirlitsins.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Samkeppniseftirlitið hefur brugðist við dómi Héraðsdóms Reykjavíkur frá því í gær þar sem komist var að þeirri niðurstöðu að breyting sem gerð var á búvörulögum á vorþingi stríði gegn Stjórnarskrá. Af því leiðir að þessi lagabreyting er ekki lengur í gildi og samkeppnislög gilda án undanþágu um samstarfs og samruna afurðastöðva.

Í tilkynningu sem Samkeppniseftirlitið hefur birt um málið segir:

„Í tilefni af dóminum hefur Samkeppniseftirlitið í dag ritað kjötafurðastöðvum og samtökum þeirra bréf. Í þeim er vakin athygli á því að samkvæmt dómi héraðsdóms samræmdust undanþáguheimildir búvörulaga ekki stjórnskipunarlögum og öðluðust því ekki lagagildi. Vegna þessa gildi samkeppnislög því fullum fetum um samstarf og samruna kjötafurðastöðva. Hafi kjötafurðastöðvar því ekki notið neinnar undanþágu frá ákvæðum samkeppnislaga.

Jafnframt er vakin athygli á því samkeppnislög banna samninga og samþykktir milli fyrirtækja sem raska samkeppni, sem og samkeppnishömlur af hálfu samtaka fyrirtækja. Einnig er vakin athygli á því að tilkynna þarf Samkeppniseftirlitinu fyrirfram um samruna fyrirtækja yfir tilteknum veltumörkum. Þá leggja samkeppnislög bann við því að samruni komi til framkvæmda á meðan Samkeppniseftirlitið fjallar um hann.

Í bréfunum er eftirfarandi beint til kjötafurðastöðva:

  • Að stöðva þegar í stað hvers konar aðgerðir eða háttsemi sem farið getur gegn samkeppnislögum og stofnast hefur til á grundvelli umræddra undanþáguheimilda.
  • Óskað er eftir upplýsingum hvort viðkomandi fyrirtæki hafi verið skilgreint sem framleiðendafélag í skilningi búvörulaga, en samkvæmt lagabreytingunum var það forsenda þess að kjötafurðastöðvar gætu nýtt sér undanþáguheimildirnar.
  • Hafi viðkomandi kjötafurðastöð ráðist í samruna eða samstarf á grundvelli undanþáguheimildanna er lagt fyrir fyrirtækið að varðveita allar upplýsingar og gögn sem varpa ljósi á þá háttsemi sem í hlut á. Í því sambandi er vakin athygli á því að það getur varðað fyrirtæki stjórnvaldssektum og einstaklinga refsingu að koma undan eða gera á annan hátt ónothæf gögn sem hafa þýðingu í síðari rannsóknum.“

Sjá nánar hér.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Oddný táraðist er hún rifjaði upp erfiðleika í æsku – „Ég ætla nú ekki að fara gráta í viðtalinu“

Oddný táraðist er hún rifjaði upp erfiðleika í æsku – „Ég ætla nú ekki að fara gráta í viðtalinu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fastus afhenti Brunavörnum Rangársýslu nýjan dælubíl

Fastus afhenti Brunavörnum Rangársýslu nýjan dælubíl
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Gunnar Smári kemur RÚV til varnar – „Skammarlegt að lesa einhverjar vandlætingargreinar um blaðamennsku Þóru“

Gunnar Smári kemur RÚV til varnar – „Skammarlegt að lesa einhverjar vandlætingargreinar um blaðamennsku Þóru“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Björn afþakkaði boð Melaniu Trump

Björn afþakkaði boð Melaniu Trump