fbpx
Miðvikudagur 07.janúar 2026
Fréttir

Sigríður Margrét lýsir miklum vonbrigðum:  „Hvar er kröfugerðin?“

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 17. október 2024 07:31

Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri SA.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir það mikil vonbrigði að samninganefnd kennara og forysta Kennarasambandsins grípi nú til skæruverkfalla án þess að leggja fram skýrar kröfur í kjarasamningum.

Sigríður Margrét lýsir þessu í aðsendri grein á Vísi sem birtist í morgun.

Eins og greint hefur verið frá hafa félagsmenn sex aðildarfélaga Kennarasambands Íslands samþykkt skæruverkföll í fjórum leikskólum, þremur grunnskólum, einum framhaldsskóla og einum tónlistarskóla. Kosið var um verkföllin og segir Sigríður Margrét að þau hafi verið samþykkt án þess að skýr kröfugerð hafi verið lögð fram.

Segist öfunda kennara

„Kennarar gegna lykilhlutverki í íslensku samfélagi og við eigum öll okkar uppáhalds kennara. Skólaganga mín í Njarðvíkurskóla er mér mjög eftirminnileg, Sigríður yfirkennari innrætti mér aga, Margrét Sanders kenndi mér lífsgildi sem standa með mér ævilangt og Erlingur stærðfræðikennari sat með mér á laugardögum svo ég gæti sleppt úr skólaári og farið áhyggjulaus í framhaldsskóla. Kennarar eru til fyrirmyndar og ég öfunda þau af því að fá að kenna,“ segir Sigríður Margrét og bætir svo við:

„Það eru því mikil vonbrigði að samninganefnd kennara og forysta kennarasambandsins grípi nú til skæruverkfalla með tilheyrandi röskun á skólastarfi og óvissu án þess að leggja fram skýrar kröfur í kjarasamningum. Það er forsenda lögmætrar verkfallsboðunar að skýrar kröfur liggi fyrir sem viðsemjandi sé í stöðu til að verða við. Vegna alvarlegra áhrifa verkfalla á nemendur, foreldra og atvinnulíf er mikilvægt að viðsemjendur í karphúsinu upplýsi um hvort skilyrði lögmætrar vinnustöðvunar séu til staðar.“

Þurfum að vera samtaka

Sigríður bendir á að mikilvægasta verkefni samfélagsins þessa dagana sé að ná tökum á verðbólgunni svo vextir geti lækkað.

„Verðbólga og vextir á Íslandi standa verðmætasköpun fyrir þrifum og þeir koma hart niður á heimilum landsins. Efnahagslegur stöðugleiki þýðir að fólk og fyrirtæki geti gert framtíðaráætlanir sem halda en hann kemur svo sannarlega ekki af sjálfu sér. Við þurfum að vera samtaka, sýna hugrekki og vera tilbúin til þess að reyna á okkur svo árangur sjáist.“

Hún segir að á almennum vinnumarkaði hafi það hugrekki verið sýnt fyrr á árinu þegar samið var um fjögurra ára kjarasamning, almenna 3,25-3,5% hækkun að lágmarki 23.750 krónur.

„Stjórnvöld tóku ákvarðanir um að verða við beiðni verkalýðshreyfingarinnar um aðgerðir til þess að styðja við gerð kjarasamninganna, þær aðgerðir voru líka fyrir kennara,“ segir hún og nefnir að lokum að almennur vinnumarkaður sé í harðri samkeppni við hið opinbera um starfsfólk.

„Réttindi opinberra starfsmanna hafa þar sitt að segja. Á opinbera markaðinum er minni vinnuskylda, meira orlof, meiri veikindaréttur, meira starfsöryggi og rík uppsagnarvernd. Það eru kostnaðarliðir sem horfa verður til þegar heildarkjör eru borin saman við almennan vinnumarkað. Undirstaða opinbers reksturs er verðmætasköpun í atvinnulífinu. Því er mikilvægt að hinn almenni vinnumarkaður leiði launaþróun og kjarasamningar opinberra starfsmanna raski ekki þeirri kjarasátt sem náðist fyrr á árinu og markmiðum um lækkun verðbólgu og vaxta.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Róbert: Reykjavík eina höfuðborg Norðurlanda með alla borgarfulltrúa í fullu starfi

Róbert: Reykjavík eina höfuðborg Norðurlanda með alla borgarfulltrúa í fullu starfi
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Stjórnarþingmaður segir símabann í skólum gagnslaust – Borgarfulltrúi ekki sammála – „Jákvæðara að unglingar fari í göngutúr til að vera í símanum“

Stjórnarþingmaður segir símabann í skólum gagnslaust – Borgarfulltrúi ekki sammála – „Jákvæðara að unglingar fari í göngutúr til að vera í símanum“
Fréttir
Í gær

Skoða ætti flugeldanotkun ofan í kjölinn æsingalaust – „Hátt í tugur hættulegra þungmálma sem eyðast ekki“

Skoða ætti flugeldanotkun ofan í kjölinn æsingalaust – „Hátt í tugur hættulegra þungmálma sem eyðast ekki“
Fréttir
Í gær

Óvíst hvort og hvenær hægt verður að sækja líkamsleifar Kjartans

Óvíst hvort og hvenær hægt verður að sækja líkamsleifar Kjartans
Fréttir
Í gær

„Menn sem aka svona „drekum“ hljóta að hafa efni á að borga í samræmi við það“

„Menn sem aka svona „drekum“ hljóta að hafa efni á að borga í samræmi við það“
Fréttir
Í gær

Baldur segir auknar líkur á að Bandaríkin taki yfir Grænland – „Ísland myndi blandast inn í þetta“

Baldur segir auknar líkur á að Bandaríkin taki yfir Grænland – „Ísland myndi blandast inn í þetta“