fbpx
Sunnudagur 15.desember 2024
Fréttir

Sex rússneskir liðhlaupar fengu tímabundið dvalarleyfi í Frakklandi

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 17. október 2024 07:30

Rússneskir hermenn á ferð. Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sex rússneskir hermenn, sem gerðust liðhlaupar, hafa fengið tímabundið dvalarleyfi í Frakklandi og gildir það á meðan umsókn þeirra um pólitískt hæli í landinu verður afgreidd.

Mannréttindasamtök segja þetta fyrsta stóra málið þar sem hópi liðhlaupa er hleypt inn í ESB-ríki. The Guardian skýrir frá þessu.

Mennirnir komu til Parísar hver fyrir sig á nokkurra mánaða tímabili á árunum 2022 og 2023 eftir að hafa flúið frá Rússlandi til Kasakstan að sögn samtaka sem aðstoða hermenn við að gerast liðhlaupar.

Frá upphafi stríðsins í Úkraínu hafa tugir þúsunda rússneskra hermanna gerst liðhlaupar eða neitað að hlýða fyrirmælum um að berjast að sögn mannréttindasinna og samtaka sem aðstoða hermenn við að gerast liðhlaupar.

Vesturlönd hafa lengi velt fyrir sér hvort þau eigi að taka við rússneskum liðhlaupum eða ekki og því hefur verið velt upp hvort ef tekið sé við þeim, hvort eigi að taka þeim sem hetjum, stríðsglæpamönnum eða hvort ógn geti stafað af þeim.

Á meðan ESB og aðildarríkin ræða þessi mál og engin ákvörðun hefur verið tekin, þá hefur reynst erfitt fyrir liðhlaupa að fá hæli.

Talsmaður Go By the Forest, sem eru samtök sem aðstoða rússneska liðhlaupa, sagði í samtali við the Guardian að ákvörðun Frakka um að veita liðhlaupunum tímabundið dvalarleyfi marki ákveðin tímamót því þeir séu ekki með nein ferðaskjöl eða vegabréf.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Allir mættu nema Mbappe
Fréttir
Í gær

Sveitarstjórn í Gran Canaria ríður á vaðið og setur á ferðamannaskatt – Tekur gildi eftir áramót

Sveitarstjórn í Gran Canaria ríður á vaðið og setur á ferðamannaskatt – Tekur gildi eftir áramót
Fréttir
Í gær

Ingólfur Kjartansson dæmdur í átta ára fangelsi

Ingólfur Kjartansson dæmdur í átta ára fangelsi
Fréttir
Í gær

Sakar Viðskiptaráð um þráhyggju og áróður – „Því er eðlilegt að spyrja hvað vaki fyrir Viðskiptaráði með jafn villandi framsetningu?“

Sakar Viðskiptaráð um þráhyggju og áróður – „Því er eðlilegt að spyrja hvað vaki fyrir Viðskiptaráði með jafn villandi framsetningu?“