Fréttir

Banaslys í Árborg

Mynd

Banaslys varð á byggingarsvæði í Árborg fyrr í dag, þegar karlmaður um fimmtugt lést þegar hann féll niður af nýbyggingu.

Maðurinn var úrskurðaður látinn á vettvangi.

Lögreglan á Suðurlandi fer með rannsókn málsins, eins og kemur fram í tilkynningu þeirra.