fbpx
Þriðjudagur 13.maí 2025
Fréttir

Ekki talið að faðirinn tengist skipulagðri glæpastarfsemi eða að hann hafi reynt að hylma yfir brot sín

Ritstjórn DV
Mánudaginn 16. september 2024 17:06

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Íslenskur karlmaður á fimmtugsaldri situr í gæsluvarðhaldi grunaður um að hafa orðið tíu ára dóttur sinni að bana. Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn hjá miðlægri rannsóknardeild lögreglu, segir í samtali við Vísi að maðurinn hafi verið samvinnufús, ekki leiki grunur um að sakborningar séu fleiri og að maðurinn tengist ekki skipulagðri glæpastarfsemi.

Ekki leiki heldur grunur um að maðurinn hafi ætlað að hylma yfir brot sitt og hafði maðurinn sjálfur samband við lögreglu. Grímur vildi ekki tjá sig að svo stöddu um hvort lögregla hafi lagt hald á vopn í tengslum við málið en hann tók fram að sem stendur leiki ekki  grunur um að maðurinn hafi verið undir áhrifum fíkniefna.

Maðurinn hafði samband við lögreglu í laust fyrir klukkan sex í gærkvöldi og reyndist staddur í hrauni við Vatnsskarðsnámi við Krýsuvíkurveg. Dóttir hans fannst skammt frá og voru endurlífgunartilraunir sem báru því miður ekki árangur og stúlkan úrskurðuð látin á vettvangi.

Faðirinn hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til þriðjudagsins 24. september að kröfu lögreglu í þágu rannsóknar málsins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Sveitarfélög úr sitt hvorum landshlutanum ræða sameiningu

Sveitarfélög úr sitt hvorum landshlutanum ræða sameiningu
Fréttir
Í gær

Ari segir stærri mál falin bak við kosninguna í dag – „Þessi breyting gæti kostað bæinn allt að 424 milljónum króna“

Ari segir stærri mál falin bak við kosninguna í dag – „Þessi breyting gæti kostað bæinn allt að 424 milljónum króna“
Fréttir
Í gær

Ætla að byggja ofan á Sóltún með gamla fólkið inni – Skelfilegur hávaði mun valda heilabiluðu fólki miklum ótta

Ætla að byggja ofan á Sóltún með gamla fólkið inni – Skelfilegur hávaði mun valda heilabiluðu fólki miklum ótta
Fréttir
Í gær

Þingmenn Samfylkingar vilja ekki mæta í þátt Stefáns Einar – Hann telur Þórð Snæ vera að hefna sín

Þingmenn Samfylkingar vilja ekki mæta í þátt Stefáns Einar – Hann telur Þórð Snæ vera að hefna sín
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fyrrum ráðherra og þingmaður VG hjólar í meirihlutann í borginni – „Fyrirsláttur, meinbægni og mismunun“

Fyrrum ráðherra og þingmaður VG hjólar í meirihlutann í borginni – „Fyrirsláttur, meinbægni og mismunun“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segir óánægju með auglýsingar SFS vera væl og þær hafi þvert á móti opnað augu almennings

Segir óánægju með auglýsingar SFS vera væl og þær hafi þvert á móti opnað augu almennings