fbpx
Þriðjudagur 16.desember 2025
Fréttir

Ragnheiður Bragadóttir prófessor hlýtur norrænu lögfræðiverðlaunin

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 22. ágúst 2024 17:31

Ragnheiður með viðurkenningarskjal sem hún hlaut við afhendingu verðlaunanna.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ragnheiður Bragadóttir, prófessor í lögfræði við Háskóla Íslands, hlaut í dag norrænu lögfræðiverðlaunin fyrir merkar rannsóknir sínar í refsirétti og afbrotafræði, einkum á sviði kynferðisafbrota og annarra afbrota gegn konum og börnum. Í umsögn um verðlaunin kemur fram að Ragnheiður hafi einnig beint sjónum að samfélagslegum glæpum í rannsóknum sínum og að íslenskum refsirétti og hljóti verðlaunin fyrir verðskuldað framlag innan rannsóknarsamfélagsins á sviði lögfræði.

Það var forseti Hæstaréttar Danmerkur, Jens Peter Christensen, sem veitti verðlaunin að þessu sinni en þau eru kennd við Knut og Alice Wallenberg stofnunina. Verðlaunaféð er 1.000.000 sænskar krónur. Verðlaunin voru veitt í tengslum við norræna fundi lögfræðinga sem haldnir eru á þriggja ára fresti í einni af höfuðborgum Norðurlanda, í þetta sinn í Kaupmannahöfn.

Samkvæmt reglum um verðlaunin eru þau einungis veitt norrænum lögfræðingum fyrir framúrskarandi störf á sviði lögfræði eða vegna fræðistarfa á sama vettvangi.

Johan Hirschfeldt, sem er formaður lagarannsóknastofnunarinnar sem stendur að verðlaununum, sagði við afhendinguna í Kaupmannahöfn í dag að brýnt framlag Ragnheiðar eigi jafnt við um norrænan vettvang og alþjóðlegan. Hirschfeldt var dómsmálaráðherra Svía árin 1992 til 1996 og forseti áfrýjunardómstólsins sænska.

Lagarannsóknastofnunin, sem var stofnuð af Knut og Alice Wallenberg stofnuninni, tilnefnir verðlaunahafa að fengnum tillögum lögfræðinganefnda frá öllum norrænu ríkjunum.

Einungis einu sinni áður hefur Íslendingur hlotið verðlaunin en þau hlaut Ármann Snævarr, prófessor í lögfræði við Háskóla Íslands, árið 1993.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Eigendur einbýlishúsa óánægðastir með gæludýrafrumvarpið

Eigendur einbýlishúsa óánægðastir með gæludýrafrumvarpið
Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Sakar Sjálfstæðismenn um hræsni og segir að af öllum lygum stjórnarandstöðunnar sé þessi sú svæsnasta

Sakar Sjálfstæðismenn um hræsni og segir að af öllum lygum stjórnarandstöðunnar sé þessi sú svæsnasta
Fréttir
Í gær

Segja stefna í óefni vegna vankunnáttu eldri borgara á tölvur

Segja stefna í óefni vegna vankunnáttu eldri borgara á tölvur
Fréttir
Í gær

Fór inn í kvennabúningsklefa í Sundhöllinni og handlék kynfæri sín fyrir framan stúlku í sturtu

Fór inn í kvennabúningsklefa í Sundhöllinni og handlék kynfæri sín fyrir framan stúlku í sturtu
Fréttir
Í gær

Helga ósátt við Bílastæðasjóð – Fær bílastæðasektir þrátt fyrir P-merki í bílglugganum

Helga ósátt við Bílastæðasjóð – Fær bílastæðasektir þrátt fyrir P-merki í bílglugganum
Fréttir
Í gær

Harpa hvetur fólk til að sleppa hamborgarhryggnum um jólin

Harpa hvetur fólk til að sleppa hamborgarhryggnum um jólin