fbpx
Laugardagur 13.desember 2025
Fréttir

Lögreglumenn vopnast rafbyssum innan skamms

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 20. ágúst 2024 09:31

Lögreglan að störfum. Mynd: Eyþór Árnason

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Almenningur getur því átt von á að sjá lögreglumenn bera rafvarnarvopn fljótlega. Rúmlega 460 lögreglumenn hafa hlotið þjálfun og öðlast réttindi til að bera rafvarnarvopn. Í tilkynningu frá ríkislögreglustjóra segir að rúmlega helmingur landsmanna sé hlynntur því að lögreglan beri rafvarnarvopn við störf.

Embætti ríkislögreglustjóra leggur nú lokahönd á nauðsynlegan undirbúning svo lögregla geti tekið rafvarnarvopn til notkunar. Tækin verða afhent lögregluembættunum í fyrstu viku septembermánaðar.

Rafvarnarvopnin eru á sama stigi í valdbeitingarstiganum og kylfa og varnarúði og gefa lögreglu aukna möguleika á að velja þann varnarbúnað sem hæfir hverju verkefni. Með því er leitast við að auka á öryggi almennings og lögreglu.

Aðeins menntaðir lögreglumenn, sem fengið hafa til þess þjálfun, munu bera rafvarnarvopn og er mikið eftirlit með notkun þess m.a. í formi sjálfvirkra skráninga og sjálfvirkrar myndupptöku úr búkmyndavél. Tölfræði yfir notkun rafvarnarvopna og annarra valdbeitingatækja verður gerð opinber með reglubundnum hætti á vef lögreglu.

Niðurstöður nýrrar könnunar Gallups sýna að rúmur helmingur landsmanna er hlynntur því að lögreglan beri rafvarnarvopn við störf. Í könnun Gallups voru sömu spurningar lagðar fyrir landsmenn og bornar voru undir lögreglumenn í könnun við lok árs 2023.

Könnun Gallups var framkvæmd 7. júní til 4. júlí síðastliðinn og var fjöldi svarenda 2.201. Spurt var um viðhorf til lögreglu, reynslu af afbrotum og ótta við þau. Könnunin var netkönnun og svarhlutfall var 49%.

Helstu niðurstöður eru:  

  • Rúmlega 51 prósent landsmanna segjast mjög eða frekar hlynntur því að lögregla beri rafvarnarvopn við störf sín.
  • Rúmlega 19 prósent landsmanna segjast hvorki hlynntir því né andvíg að lögregla beri rafvarnarvopn við störf sín.
  • Tæplega 30 prósent segjast frekar eða mjög andvíg því að lögregla beri rafvarnarvopn við störf sín. Þar af segjast 12,9 prósent frekar andvíg  og 16,7 prósent mjög andvíg.

Þegar þátttakendur voru spurðir um beitingu rafvarnarvopna í mismunandi aðstæðum þá sagðist mikill meirihluti hlynntur því að beita rafvarnarvopni gegn aðila sem vopnaður er hníf eða ógnar öðrum með hníf og aðila vopnuðum barefli. Það rímar vel við niðurstöður úr árlegri könnun ríkislögreglustjóra á starfsumhverfi lögreglumanna þar sem spurt var að því sama en alls bárust 343 svör í þeirri könnun. Rúm sextíu prósent landsmanna var sammála því að beita rafvarnarvopni gegn aðila sem sýnir ofbeldisfulla hegðun en aðeins 35,5 prósent töldu að beita ætti rafvarnarvopni þegar aðili er í geðrofi eða ekkert samband næst við einstaklinginn. Það er sambærileg niðurstaða og kom fram í könnun meðal lögreglumanna þar sem aðeins um 32 prósent töldu að beita ætti rafvarnarvopni í slíkum aðstæðum.

Landsmenn eru hlynntari því að lögregla beiti rafvarnarvopni gegn aðila sem hótar lögreglu heldur en lögreglumenn sjálfir. Færri eru hlynntir því að beita rafvarnarvopni gegn aðila sem hlýðir ekki fyrirmælum lögreglu. Þá er tæpur helmingur landsmanna á móti því að rafvarnarvopni sé beitt gegn einstaklingum á aldrinum 15 til 18 ára sem sýna ofbeldisfulla hegðun. Rúmur helmingur lögreglumanna var á móti slíku. Tæplega helmingur landsmanna er hlynntur því að lögregla beiti rafvarnarvopnum í óeirðum á meðan aðeins um fjórðungur lögreglumanna var hlynntur því.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Kúbverji fær ekki vegabréfsáritun til Íslands – Sagt að kvarta við Svía

Kúbverji fær ekki vegabréfsáritun til Íslands – Sagt að kvarta við Svía
Fréttir
Í gær

Opnaði sig um erfiða reynslu í pontu Alþingis: „Fyrir átta árum var fótunum kippt undan mér án fyrirvara“

Opnaði sig um erfiða reynslu í pontu Alþingis: „Fyrir átta árum var fótunum kippt undan mér án fyrirvara“
Fréttir
Í gær

Fær ekki að stunda nám á Íslandi – Trúðu ekki að hún hefði verið að lána bróður sínum pening

Fær ekki að stunda nám á Íslandi – Trúðu ekki að hún hefði verið að lána bróður sínum pening
Fréttir
Í gær

Tekinn með bensínsprengju

Tekinn með bensínsprengju
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kallar eftir skýrari afstöðu stjórnvalda – „Sitji ekki hjá sofandi að feigðarósi og láti listafólk um þetta alltaf!“

Kallar eftir skýrari afstöðu stjórnvalda – „Sitji ekki hjá sofandi að feigðarósi og láti listafólk um þetta alltaf!“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Vilhjálmur til OK

Vilhjálmur til OK
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sauðdrukkinn jarðýtustjóri dæmdur – Sagðist hafa klárað lítraflösku af vodka í einum teyg

Sauðdrukkinn jarðýtustjóri dæmdur – Sagðist hafa klárað lítraflösku af vodka í einum teyg
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segir að svona sé stjórnarandstaðan að ljúga að landsmönnum – „Þetta er ósatt. Þvæla“

Segir að svona sé stjórnarandstaðan að ljúga að landsmönnum – „Þetta er ósatt. Þvæla“