fbpx
Þriðjudagur 17.júní 2025
Fréttir

Steinunn Ólína snýr sér að næsta máli: Bjarni getur ekki verið forsætisráðherra þjóðarinnar

Ritstjórn DV
Mánudaginn 3. júní 2024 11:47

Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir. Skjáskot/Youtube

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Næsta mál á dagskrá. Bjarni Benediktsson getur ekki verið forsætisráðherra þjóðarinnar,“ segir Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, forsetaframbjóðandi í nýafstöðnum kosningum, í pistli á Facebook-síðu sinni.

Steinunn Ólína lýsti því yfir fyrir kosningar að hún myndi bjóða sig fram til forseta færi svo að Katrín Jakobsdóttir gæfi kost á sér.

„Ég er ekki að bíða eft­ir rétta staðnum eða réttu stund­inni til að til­kynna fram­boð. Ég er hins vegar að bíða eft­ir því hvort satt sé að sitj­andi for­sæt­is­ráðherra ætli að bjóða sig fram til embætt­is for­seta Íslands. Geri hún það, þá býð ég mig fram. Það er lof­orð,“ sagði hún fyrir kosningar.

„Siðlaust og rangt“

Það raungerðist en Katrín hlaut ekki náð fyrir augum þjóðarinnar, ekki frekar en Steinunn Ólína sem fékk 0,65% fylgi. Nú hefur Steinunn Ólína sett nýtt mál á dagskrá og lýtur það að Bjarna Benediktssyni forsætisráðherra. Segir hún að það sé „siðlaust og rangt“ að hafa hann í stól forsætisráðherra.

„Hann starfar gegn hagsmunum þjóðarinnar en fyrir þá sem eiga og ráða í íslensku samfélagi. Ríkasta fólkinu. Hann ber mikla ábyrgð á siðvillu þeirri sem breiðist út um íslenskt samfélag. Hans störf snúast nær eingöngu um sérhagsmunagæslu og arðrán á þjóðareignum. Hann gerir það hversdagslegt að svindla, pretta, meiða, ljúga og stela. Þetta er ólíðandi ómenning sem vegur að heilbrigðu hugarfari í samfélaginu.“

Steinunn Ólína vandar Sjálfstæðisflokknum ekki kveðjurnar.

„Flokkur sá sem hann leiðir sem hefur frelsi einstaklingsins að leiðarljósi er klofinn og það er frumábyrgð þess hluta flokksins sem virðist hafa einhver prinsipp að losa sig við meinsemdina. Sjálfstæðisflokkurinn getur aldrei orðið frískur með síbrotamanninn Bjarna Benediktsson innbyrðis.“

Segir þjóðinni blöskra

Steinunn Ólína segir að fréttamenn RÚV hafi í tvígang haldið því fram í viðtölum við hana að Bjarni hafi verið kosinn í starf forsætisráðherra.

„Þetta er einfaldlega rangt og málflutningur fréttamanna óboðlegur. Íslensku þjóðinni þvert á móti blöskrar að Bjarni sitji í þessu embætti. Þjóðin brást við stólaskiptunum með undirskriftalista tæplega 45.000 manns honum til höfuðs sem stjórnvöld og forseti höfðu að engu.“

Steinunn Ólína segir að Bjarni sé forsætisráðherra fyrir tilstuðlan fyrrum forsætisráðherra í óþökk þjóðarinnar.

„Þjóðin svaraði fyrir sig í forsetakosningum nýafstöðnum svo ekki er um að villast.

Vera hans í starfi forsætisráðherra er einfaldlega siðlaus og særandi fyrir almenning í landinu. Hvað hugsar Svandís Svavarsdóttir eftir að sjálft Ríkisútvarpið og ríkisstyrktir fjölmiðlar vógu að lýðræðinu í aðdraganda forsetakosninga? Þegar sérhagsmunaöflunum mistókst þrátt fyrir yfirgengilega grimmd og ósvífni svo ekki sé talað um fjáraustur sem þjóðinni blöskraði að kaupa sjálft forsetaembættið.“

Kemur til greina að standa með þjóðinni?

Steinunn Ólína spyr hvort VG ætli að vera áfram skjól fyrir Bjarna. Spyr hún hvar heilindi Svandísar eru við íslenskan almenning.

„Er það bara valdasýkin útbreidda sem ræður för? Endar Svandís sinn pólitíska feril á því að selja undan okkur landið í frekara samstarfi við klofinn X-D og laskaða Framsókn?

Þorgerður Katrín var öskureið þegar frumvarp VG um lagareldi kom til 1. umræðu þingsins enda aðför að landi og þjóð. Ætlar flokkur hennar af sérgæsku að hlúa áfram að veru forsætisráðherra í stóli sínum sem stundar gripdeildir með eigur landsmanna fyrir opnum tjöldum? Kemur til greina að lýsa vantrausti á forsætisráðherra og standa með þjóðinni?

Hvað með þingmenn þá sem sofa eða eru fjarverandi meira og minna?“

Steinunn Ólína segir að það sé margt mikilvægara en stólar og völd.

„Fólki er sagt upp störfum í þjóðfélaginu og hefur lítinn rétt til varnar, það er veruleiki almennings. Það þarf ósérhlífni til að starfa að heilindum sem stjórnmálamaður sem hefur þá frumskyldu að starfa fyrir almenning í landinu. Ef heiðarlegir og velþenkjandi þingmenn og ráðherrar stöðva ekki siðspillinguna undir stjórn Bjarna Benediktssonar verður íslenska þjóðin sem fyrst að krefjast afsagnar götustráksins út Garðabænum og senda hann heim til föðurhúsanna þar sem hann við föðurkné nam fræðin.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sálfræðingur sem fékk ekki starfsleyfi á Íslandi fór aftur í sálfræðinám en það dugði ekki til

Sálfræðingur sem fékk ekki starfsleyfi á Íslandi fór aftur í sálfræðinám en það dugði ekki til
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Akureyrarbær gerði ekkert vegna ófremdarástands á friðuðu húsi

Akureyrarbær gerði ekkert vegna ófremdarástands á friðuðu húsi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Tveir látnir á Edition hótelinu – Þriðji með áverka

Tveir látnir á Edition hótelinu – Þriðji með áverka
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Rannsaka hvort vefsíða hýst á Íslandi hafi verið notuð til að hafa áhrif á pólsku forsetakosningarnar

Rannsaka hvort vefsíða hýst á Íslandi hafi verið notuð til að hafa áhrif á pólsku forsetakosningarnar
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Nettó lýsti eftir bíræfnum þjófi – Netverjar voru ekki lengi að bera kennsl á krúttlega kappann

Nettó lýsti eftir bíræfnum þjófi – Netverjar voru ekki lengi að bera kennsl á krúttlega kappann
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Hjördís tók smálán til að ná endum saman og er föst í fátæktargildru – „Að glíma við mikla fátækt í kjölfarið og sé ég eftir því í dag“

Hjördís tók smálán til að ná endum saman og er föst í fátæktargildru – „Að glíma við mikla fátækt í kjölfarið og sé ég eftir því í dag“
Fréttir
Fyrir 4 dögum

Læknahjónin ætluðu að hefja nýtt líf – Tóku þessa mynd skömmu fyrir flugtak

Læknahjónin ætluðu að hefja nýtt líf – Tóku þessa mynd skömmu fyrir flugtak
Fréttir
Fyrir 4 dögum

Sat í sæti 11A og var sá eini sem komst lífs af – Bróðir hans í sæti 11 J hvarf í eldhafið

Sat í sæti 11A og var sá eini sem komst lífs af – Bróðir hans í sæti 11 J hvarf í eldhafið