Þeir voru handteknir í aðgerð sérsveita þýsku lögreglunnar í bænum Bayreuth sem er í suðurhluta Bayern. Húsleit var gerð heima hjá þeim og á vinnustöðum þeirra.
Dieter S. hefur barist með hersveitum, hliðhollum Rússum, í austurhluta Úkraínu og er hann grunaður um að hafa verið að skipuleggja árás í Þýskalandi. Nancy Faeser, innanríkisráðherra, sagði á fréttamannafundi að yfirvöldum hafi tekist að koma í veg fyrir hugsanlega sprengjuárás sem hafi verið ætlað að hæfa og grafa undan hernaðaraðstoð Þjóðverja við Úkraínu.
Samkvæmt handtökuskipuninni á hendur tvímenningunum þá eru þeir grunaðir um að starfa fyrir erlenda leyniþjónustu og fyrir að hafa undirbúið skemmdarverk. Dieter S. er sagður hafa farið víða um Þýskalandi og tekið myndir og myndbönd sem hann lét tengilið sínum hjá rússnesku leyniþjónustunni í té. Er Alexander J. sagður hafa aðstoðað hann síðan í mars. Í annarri handtökuskipun er Dieter S. sagður vera félagi í erlendum hryðjuverkasamtökum og að hann sé að undirbúa alvarlega aðgerð sem stofni öryggi ríkisins í hættu.
Þýskaland er það land sem lætur Úkraínu næst mest af vopnum í té, aðeins Bandaríkin leggja meira af mörkum.
Af þessum sökum og fleiri hafa Rússar ákveðið að Þýskaland sé höfuðandstæðingur þeirra í Evrópu.
Í mars sagði Oleksiy Danilov, sem starfaði áður hjá úkraínska stríðsmálaráðuneytinu, í samtali við The Times of London að Úkraínumenn hafi ítrekað varað Þjóðverja við „rússnesku njósnaneti sem sé mjög virkt í Þýskalandi“.