Fasteigna- og leiguverð hefur hækkað mikið á síðustu fimm árunum. Þessi raunveruleiki birtist skýrt hjá fasteignavefnum Fastinn. Þar er hægt að sjá yfirlit yfir þinglýsta kaup- og leigusamninga sem og samantekt yfir fasteignaauglýsingar.
Blaðamaður tók saman nokkur dæmi um hvað eignir sem auglýstar eru til sölu í dag hafa hækkað mikið í verði á fáeinum árum.
Lítil tveggja herbergja íbúð á jarðhæð í Furuhlíð í Kópavogi var nýleg auglýst til sölu og var ásett verð 49,9 m.kr. Íbúðin er um 56 fermetrar að stærð. Sama íbúð var auglýst árið 2019 og var þá ásett verð 31,9 m.kr.
Annað dæmi er í miðborginni. Við Karlagötu er til sölu þriggja herbergja íbúð sem er tæplega 80 fermetrar, en tími er kominn á viðhald utanhúss. Ásett verð er 59,5 m.kr. Sama eign var auglýst árið 2021 og var ásett verð þá 39,9 m.kr.
Næst horfum við til Hafnarfjarðar. Þar er til sölu 3-4 herbergja íbúð við Álfholt en eignin er tæpir 94 fermetrar. Ásett verð er 59,9 m.kr. Sama eign var til sölu árið 2021 og var ásett verð þá 41,9 m.kr.
Íbúð í raðhúsi við Drangaskarð afhentist án gólfefna til allra fyrstu eigenda árið 2019 en auglýst verð var 51,9 m.kr. Skráð stærð er 117,5 fermetrar. Sama eign er nú í sölu á 84,9 m.kr.
Einbýlishús við Þrastarlund í Garðabæ var auglýst árið 2021 á 149 m.kr. og er í dag auglýst á 179,9 m.kr.
Einbýlishús við Eikarlund á Akureyri var árið 2017 auglýst á 82,9 m.kr. en í dag er það auglýst á 169,9 m.kr.
Við Aflakór í Kópavogi er einbýli nú til sölu á 234,9 m.kr. Sama einbýli var auglýst árið 2022 á 220 m.kr og árið 2016 á 99,5 m.kr.
Einbýli við Krókamýri var árið 2020 auglýst á 118 m.kr. en er í dag auglýst á 225 m.kr.
Ofangreind dæmi sýna skýrt hvað húsnæðisverð hefur hækkað ört og mikið. Þó svo hægt hafi á undanfarið þá er nú að myndast þrýstingur á verð fasteigna á höfuðborgarsvæðinu út af stöðu Grindvíkinga.
Af nýjustu þinglýstu leigusamningunum má fá hugmynd um leiguverð. Til dæmis er leigjandi við Bárugötu í Reykjavík að greiða 200 þúsund krónur á mánuði fyrir 30 fermetra íbúð.
Formaður leigjendafélagsins hefur kallað eftir regluvæðingu á leigumarkaði. Leiguverð sé komið í hæstu hæðir og fyrirhugaðar hækkanir stjórnvalda á húsnæðisbótum eigi eftir að keyra leiguverð enn meira upp.