Gunnar stofnaði Facebook-hópinn Baldur og Felix – alla leið í fyrrakvöld og skoraði þar með á Baldur að bjóða sig fram. Óhætt er að segja að hópurinn hafi sprungið út og í gærkvöldi voru tæplega 12 þúsund meðlimir komnir í hópinn.
Gunnar fór yfir stöðu mála á Facebook í gærkvöldi þar sem hann sagðist hafa vonast til þess að svona þúsund meðlimir kæmu í hópinn þegar hann var stofnaður. Í morgun voru meðlimir orðnir 13 þúsund.
„Baldur finnur pressuna og ég vonast eftir tilkynningu á næstu dögum … kannski vikum. Vonandi fyrir páska. Það er nefnilega ekkert smáræðis skref að taka þegar ákveðið er að bjóða sig fram til forseta. Í fyrsta lagi útseturðu þig fyrir ljótum ummælum. Líf þitt er grandskoðað og eldgamlir ruslpóstar dregnir upp úr dimmustu afkimum alnetsins. Ekki hef ég þó áhyggjur að þeir póstar séu til frá Baldri. Alls ekki,“ segir Gunnar í færslu sinni.
Hann bætir við að líf viðkomandi umturnist, fyrst í framboðinu sjálfu og svo ef sigur vinnst þá næstu fjögur eða jafnvel átta árin. Um sé að ræða stórar ákvarðanir og þá eigi eftir að fjármagna baráttuna og viðbúið að kostnaður hlaupi á tugum milljóna.
„Þannig að ég skil vel að þeir hjónin þurfi að hugsa sig aðeins um. Ég gef þeim tvær vikur! Og hananú! Og er sjúklega peppaður og bjartsýnn,“ segir Gunnar.
Eitthvað hefur borið á nettröllum sem birt hafa leiðindafærslur í hópnum. Hafa margir kallað eftir því að takmarkað verði hverjir mega birta færslur. Gunnar kemur inn á þetta í færslu sinni þar sem hann er stjórnandi hópsins og kveðst ætla að takmarka hópinn þannig að aðeins meðlimir geti sett inn innlegg. Á meðan biður hann meðlimi að skjóta „skítadreifarana“ niður með ást og kímni – en ekki rifrildum.
Bætir hann við að ef þetta fer að ágerast verði færslum eytt. „En ég vil ekki gera það eins og sakir standa. Þetta eru örfá grey sem eru að pirra okkur, það er allt og sumt.“