fbpx
Miðvikudagur 25.júní 2025
Fréttir

Íslenska kokkalandsliðið í 3. sæti á Ólympíuleikunum 

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 7. febrúar 2024 13:50

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Íslenska kokkalandsliðið landaði 3. sæti á ólympíuleikunum í matreiðslu í Stuttgart en lokaúrslitin voru tilkynnt rétt í þessu á lokahátíð leikanna. Sviss hafnaði í öðru sæti en það voru frændur vorir Finnar sem hrepptu fyrsta sætið og eru því Ólympíumeistarar í matreiðslu í ár. Þetta jafnar árangur landsliðsins hér fyrir fjórum árum en þriðja sæti er besti árangur sem Ísland hefur náð á leikunum. Fimmtíu og fimm þjóðir tóku þótt í leikunum í ár.

Liðið keppti í tveimur keppnisgreinum. Fyrri keppnisgreinin fór fram á sunnudag, „Chef´s table“, tólf manna borð með 11 rétta matseðli og seinni greinin sem fór fram í gær þriðjudag þar sem þarf að afgreiða þriggja rétta matseðil fyrir 110 manns.

Liðið stóð sig mjög vel í báðum keppnisgreinunum og hlaut gull einkunn fyrir þær báðar en það þýðir að liðið skilaði meira en 91 stigi af 100 mögulegum. Lokaniðurstöður dómara eru hins vegar ekki birtar fyrr en á lokadegi sem var í gær og þá eru samanlögð stig fyrir báðar greinar lagðar saman og allar keppnisþjóðirnar bornar saman.

Síðustu ár hefur íslenska kokkalandsliðið náð mjög góðum árangri bæði á heimsmeistaramótinu og á Ólympíuleikunum. Það er afrakstur markvissrar vinnu til fjölda ára og metnaður bæði hjá Klúbbi matreiðslumeistara og liðsfólki.

Þessi skipa landsliðið

Hópurinn sem fór til Stuttgart er jafnframt leiddur af Ísaki Aroni Jóhannssyni fyrirliða en hann starfar hjá Zak veitingum og hefur mikla keppnisreynslu. Hann hefur verið í landsliðshópnum síðan 2019.  Hann bar sigur úr býtum í keppninni um eftirrétt ársins 2022 og varð í fjórða sæti í keppninni um kokk ársins sama ár. Aðrir í hópnum eru:

Hugi Rafn Stefánsson, sjálfstætt starfandi, hefur staðið uppi sem sigurvegari í Íslensku nemakeppninni í matreiðslu og verið aðstoðarmaður í Bocuse´dor keppninni.

Úlfar Örn Úlfarsson, sjálfstætt starfandi, hefur keppt í keppninni um Eftirréttur ársins og verið í Bocude´dor teyminu. 

Erla Þóra Bergmann Pálmadóttir, Fjallkonunni, hefur tekið þátt í keppninni Eftirréttur ársins og verið í kokkalandsliðinu síðan 2021.

Gabríel Kristinn Bjarnason, Dill, sigraði keppnina Nordic Young Chef 2021, hefur náð þriðja sæti í keppninni um Kokkur ársins og unnið Íslensku nemakeppnina ásamt því að vera aðstoðarmaður í Bocuse´dor.

Kristín Birta Ólafsdóttir, Hótel Reykjavík Grand, fyrrum sigurvegari í Íslensku nemakeppninni og hefur tekið þátt í keppninni um Eftirréttur ársins ásamt því að lenda í þriðja sæti á Íslandsmóti iðngreina.

Jafet Bergmann Viðarsson, Torfús Retreat, hefur tekið þátt í keppninni Eftirréttur ársins og Matreiðslunemi ársins. 

Bjarki Snær Þorsteinsson, Lux veitingar, hefur tekið þátt í keppnunum um eftirrétt ársins, Matreiðslunemi ársins og Nordic Green Chef. 

Ólöf Ólafsdóttir Head pastry chef – Monkeys, vann í keppninni um eftirrétt ársins 2021

María Shramko, Bakarameistaranum, er reynslubolti í keppnismatreiðslu en hún hefur unnið til fleiri en hundrað verðlauna á stórmótum og er viðurkenndur dómari. 

Landsliðsþjálfarinn er einnig mikill reynslubolti í faginu en ásamt því að þjálfa landsliðið er Snædís Xyza Mae Jónsdóttir yfirkokkur á Ion Adventure. Hefur hún verið tengd landsliðinu síðan 2016 og var í landsliðshópnum sem náði þriðja sæti á síðustu Ólympíueikum, ásamt því meðal annars að keppa í Kokkur ársins, standa uppi sem sigurvegari í Eftirréttur ársins 2018 og vinna Artic Chef keppnina á Akureyri á þessu ári.

Þórir Erlingsson forseti Klúbbs matreiðslumeistara, sem á og rekur kokkalandsliðið, segir að miklar væntingar séu gerðar til hópsins. „Hópurinn samanstendur af hæfileikaríku matreiðslufólki með frábæran þjálfara, sem á eftir að ná langt,“ segir Þórir og bætir við að ótrúlegt sé að fylgjast með eljunni og metnaði allra sem að koma, þar sem takmarkið sé að ná á verðlaunapall. „Að vera með landslið sem aftur og aftur sannar sig í að vera meðal þeirra bestu væri ekki hægt nema fyrir frábæran stuðning bakhjarla og styrktaraðila, þeir gera okkur þetta kleift,“ segir Þórir um leið og hann þakkar öllum þeim sem koma að starfi kokkalandsliðsins fyrir þeirra framlag.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Dómur fallinn yfir Sigurði Fannari – Varð dóttur sinni að bana á Krýsuvíkurvegi

Dómur fallinn yfir Sigurði Fannari – Varð dóttur sinni að bana á Krýsuvíkurvegi
Fréttir
Í gær

Jón Viðar botnar ekkert í Ingu Sæland: „Hef ég misskilið eitthvað, Inga?!“

Jón Viðar botnar ekkert í Ingu Sæland: „Hef ég misskilið eitthvað, Inga?!“
Fréttir
Í gær

Ferðamaður lýsir furðulegri reynslu af Íslendingum eftir stutta heimsókn – „Þetta var sérstaklega óhugnanlegt“

Ferðamaður lýsir furðulegri reynslu af Íslendingum eftir stutta heimsókn – „Þetta var sérstaklega óhugnanlegt“
Fréttir
Í gær

„Enginn veit hvaða hörmungar og þjáningar þetta kann að hafa í för með sér“

„Enginn veit hvaða hörmungar og þjáningar þetta kann að hafa í för með sér“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Bilun veldur truflunum á farsíma- og netþjónustu á Neskaupstað og Eskifirði

Bilun veldur truflunum á farsíma- og netþjónustu á Neskaupstað og Eskifirði
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segir að Kristrún Frostadóttir hafi gengið í gildru andstæðinga sinna á Ísafirði – „Líklega er þetta sú setning sem Kristrún mátti síst segja“

Segir að Kristrún Frostadóttir hafi gengið í gildru andstæðinga sinna á Ísafirði – „Líklega er þetta sú setning sem Kristrún mátti síst segja“