fbpx
Miðvikudagur 17.desember 2025
Fréttir

Slæm veðurspá í dag og vegir gætu lokað með stuttum fyrirvara

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 31. janúar 2024 07:08

Mynd úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Veðurspáin fyrir daginn í dag er ekkert sérstök á sunnan- og suðvestanverðu landinu og taka gular viðvaranir gildi í hádeginu á höfuðborgarsvæðinu, Suðurlandi, Faxaflóa og á Suðausturlandi.

Á höfuðborgarsvæðinu er gul viðvörun í gildi frá klukkan 12:30-17:00 og á vef Veðurstofunnar segir að gera megi ráð fyrir vestan 15-23 metrum á sekúndu, dimmum éljum og skafrenningi með lélegu skyggni. Líkur eru á samgöngutruflunum vegna þessa.

Svipað verður uppi á teningnum annars staðar þar sem gular viðvaranir eru í gildi. Það mun ganga á men dimmum éljum og skafrenningi og getur færð spillst.

Vegagerðin lýsti í gærkvöldi yfir óvissustigi á eftirfarandi vegum frá klukkan 9 til 20 í kvöld og gætu þeir lokað með stuttum fyrirvara.

Hellisheiði

Þrengsli

Mosfellsheiði

Kjalarnes

Hafnarfjall

Suðurstrandarvegur

Reykjanesbraut

Grindavíkurvegur

Lyngdalsheiði

Akrafjallshringur

Borgarfjörður

Hvalfjörður

Mýrar

Hringvegur (1) milli Hveragerðis og Markarfljóts

Uppsveitir Suðurlands

og Árborgarhringur.

Krýsuvíkurvegur lokaði klukkan 6 í morgun.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Eigendur einbýlishúsa óánægðastir með gæludýrafrumvarpið

Eigendur einbýlishúsa óánægðastir með gæludýrafrumvarpið
Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Sakar Sjálfstæðismenn um hræsni og segir að af öllum lygum stjórnarandstöðunnar sé þessi sú svæsnasta

Sakar Sjálfstæðismenn um hræsni og segir að af öllum lygum stjórnarandstöðunnar sé þessi sú svæsnasta
Fréttir
Í gær

Segja stefna í óefni vegna vankunnáttu eldri borgara á tölvur

Segja stefna í óefni vegna vankunnáttu eldri borgara á tölvur
Fréttir
Í gær

Fór inn í kvennabúningsklefa í Sundhöllinni og handlék kynfæri sín fyrir framan stúlku í sturtu

Fór inn í kvennabúningsklefa í Sundhöllinni og handlék kynfæri sín fyrir framan stúlku í sturtu
Fréttir
Í gær

Helga ósátt við Bílastæðasjóð – Fær bílastæðasektir þrátt fyrir P-merki í bílglugganum

Helga ósátt við Bílastæðasjóð – Fær bílastæðasektir þrátt fyrir P-merki í bílglugganum
Fréttir
Í gær

Harpa hvetur fólk til að sleppa hamborgarhryggnum um jólin

Harpa hvetur fólk til að sleppa hamborgarhryggnum um jólin