Ökumaður fólksbifreiðar lést þegar bifreið hans lenti í árekstri við vöruflutningabifreið á Vesturlandsvegi í gær skammt frá gatnamótunum við Hvalfjarðarveg.
Þetta kemur fram í tilkynningu lögreglunnar á Vesturlandi. Tilkynnt var um slysið klukkan 09:48 í gærmorgun.
„Slysið átti sér stað á Vesturlandsvegi skammt frá gatnamótunum við Hvalfjarðarveg. Þar hafði fólksbifreið á suðurleið rekist utan í vöruflutningabifreið sem kom úr gagnstæðri átt og síðan á aðra vöruflutningabifreið sem kom þar á eftir. Ökumaður fólksbifreiðarinnar lést við áreksturinn og farþegi hans slasaðist en ökumenn vöruflutningabifreiðanna voru óslasaðir en voru fluttir til skoðunar á sjúkrahúsið á Akranesi þar sem þeir síðan fengu áfallahjálp,“ segir í tilkynningu lögreglu.
Lögreglan á Vesturlandi ásamt sjúkra- og slökkviliði fóru á vettvang og þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út sem flutti slasaðan farþega til Reykjavíkur.
Tæknideild lögreglunnar á Höfuðborgarsvæðinu ásamt rannsóknarnefnd samgönguslysa komu á vettvang en rannsóknardeild lögreglunnar á Vesturlandi rannsakar slysið.