

Þetta segja bæði rússneskir og úkraínskir heimildarmenn en þá greinir hins vegar á um atburðarásina.
Samkvæmt úkraínsku útgáfunni þá komst leyniþjónusta hersins í samband við rússneska flugmann sem vildi sleppa úr hernum. Samið var við hann og var fyrsta verk Úkraínumanna síðan að koma fjölskyldu hans út úr Rússlandi. Því næst fór flugmaðurinn í verkefni fyrir rússneska herinn en beygði af leið og flaug inn á úkraínskt yfirráðasvæði og lenti heilu og höldnu og afhenti Úkraínumönnum þyrluna. Einnig fylgir sögunni að hinir tveir áhafnarmeðlimirnir hafi ekki vitað hvað var að gerast. Þegar þyrlan var lent reyndu þeir að sögn að flýja og voru þá „því miður“ drepnir að sögn Kyrylo Budanov, yfirmanns leyniþjónustunnar sem bætti við að Úkraínumenn hefðu gjarnan viljað ná þeim lifandi en hafi fengið annað sem þeir vildu.
Það var aukabónus fyrir Úkraínumenn að um borð í þyrlunni voru varahlutir í Su-27 og Su-30 orustuþotur sem Úkraínumenn og Rússar nota.
Rússneska útgáfan er öðruvísi en samkvæmt henni flaug flugmaðurinn um 300 km inn á úkraínskt yfirráðasvæði vegna fjarskipta- eða stjórnkerfisvanda. Áhöfnin hafi ekki uppgötvað vandann fyrr en þyrlunni hafði verið lent. Hún hafi þá reynt að taka á loft á nýjan leik en allir áhafnarmeðlimirnir hafi þá verið skotnir af Úkraínumönnum.
Rússneska útgáfan virðist ansi ósannfærandi því það væri í hæsta máta óeðlilegt ef tekist hefði að fljúga þyrlunni mörg hundruð kílómetra inn á úkraínskt yfirráðasvæði fyrir mistök og það án þess að hún væri skotin niður. Bæði löndin eru með öflugar loftvarnir við víglínuna og því ósennilegt að þyrlan hefði komist svona langt án þess að Úkraínumenn hefðu skotið á hana.