fbpx
Laugardagur 28.júní 2025
Fréttir

Vendingar í dularfullu hvarfi fyrrum fiðluleikara Sinfóníuhljómsveitar Íslands – Höfðar mál til að fá föður sinn úrskurðaðan látinn

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 27. desember 2023 11:42

Sean Bradley hvarf með dularfullum hætti árið 2018

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sonur fiðluleikarans Sean Aloysius Marius Bradley, Moses, hefur höfðað mál við Héraðsdómi Suðurlands og fer fram á að úrskurðað verði með dómi að faðir hans skuli talinn látinn. Þetta kemur fram í tilkynningu í Lögbirtingablaðinu í dag.

Hvarf sporlaust fyrir fimm árum

Sean, sem er 66 ára gamall og fyrrum fiðluleikari við Sinfóníuhljómsveit Íslands, var búsettur á Selfossi en hann hvarf sporlaust í júní árið 2018 og hefur ekkert til hans spurst síðan. Í Lögbirtingblaðinu kemur fram að Moses hafi leitað til lögreglunnar þann 9. desember 2019 og viðrað áhyggjur sínar af föður sínum. Kemur fram að feðgarnir hafi ekki verið í miklu sambandi en Sean hafi átt við áfengisvandamál að stríða og hefði átt það til að láta ekki ná í sig.

Þá kemur fram í tilkynningunni að um það leyti sem Sean hvarf hafi hann átt bókað flugsæti til Spánar en ekki hafi fengist staðfest hvort að hann hafi nýtt flugsætið né hafi yfirvöld á Spáni getað staðfest hvort hann hafi komið til landsins eða dveldi þar. Engin virkni hafi verið á greiðslukortum Seans né bankareikningum.

Dularfull skilaboð á samfélagsmiðlum

Fréttablaðið fjallaði um hvarf Seans þann 1.maí 2020. Í umfjöllun blaðsins kom fram að hvarfið væri dularfullt en samkvæmt heimildum blaðsins hefði Sean mælt sér mót við vinkonu sína skömmu áður en hvarf. Ætluðu þau að keyra saman til Reykjavíkur og fara í kirkju. Hann hafi hins vegar ekki mætt á fund þeirra og þrátt fyrir ítrekuð símtöl hafi ekki náðst í hann. Þá kom áðurnefndur sonur hans, Moses, til landsins um það leyti að freista þess að hitta föður sinn en greip í tómt.

Það dularfyllsta í málinu voru hins vegar skilaboð frá Sean á samfélagsmiðlum um að hann væri kominn til Spánar og væri genginn í búdda-klaustur til að stunda íhugun og vildi vera látinn í friði. Hvort að Sean hafi sent þau skilaboð sjálfur eða einhver með aðgang að samfélagsmiðlum hans er á huldu.

„Það fannst okkur öllum mjög skrýtið því hann var ekki fyrir að fljúga,“ hafði Fréttablaðið eftir nafnlausri vinkonu Seans. Kemur fram að Sean hafi þjáðst af gigt og verið með skerta hreyfigetu. Hann hafi ekki getað hreyft sig langt án stuðnings.

Ítarleg leit á heimili fiðluleikarans

Þá kom fram í umfjöllun blaðsins að lögreglan hafi árið 2020 rætt við aðra íslenska vinkonu Seans, sem hafi ætlað með honum til Spánar. Sú  lá þó ekki undir grun um að hafa komið að hvarfi Seans. Þá hafi Lögreglan á Suðurlandi og tæknideild lögreglunnar gert ítarlega leit á heimili Seans á Selfossi en engin ummerki hefðu fundist um að eitthvað saknæmt hefði átt sér stað.

Sagði Oddur Árnason, yfirlögregluþjónn á Suðurlandi, í samtali við Fréttablaðið að ýmsar kenningar væru opnar um hvarf Sean en að það gerði lögreglunni erfitt um vik að tilkynning um hvarf hans hafi borist einu og hálfu ári eftir að hann raunverulega hvarf.

Hver afdrif fiðluleikarans urðu er því á huldu og ekki útlit fyrir að gátan verði leyst í bráð.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Eiginkonan í áfalli: „Þetta eru svik“

Eiginkonan í áfalli: „Þetta eru svik“
Fréttir
Í gær

Vegagerðin vill hjartalaga umferðarljósin hennar Margrétar burt – „Ég eiginlega veit ekki hvað ég á að segja“

Vegagerðin vill hjartalaga umferðarljósin hennar Margrétar burt – „Ég eiginlega veit ekki hvað ég á að segja“
Fréttir
Í gær

Synjað um greiðsluþátttöku vegna sjúkdóms sem leggst á getnaðarliminn: Grét af kvölum – „Hreinlega efni í Kveik á RÚV“

Synjað um greiðsluþátttöku vegna sjúkdóms sem leggst á getnaðarliminn: Grét af kvölum – „Hreinlega efni í Kveik á RÚV“
Fréttir
Í gær

Landsréttur sneri við dómi í meiðyrðamáli Aðalsteins gegn þekktum Moggabloggara

Landsréttur sneri við dómi í meiðyrðamáli Aðalsteins gegn þekktum Moggabloggara
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Trump brjálaður yfir fréttaflutningi um að árásin hafi misheppnast

Trump brjálaður yfir fréttaflutningi um að árásin hafi misheppnast
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ríkisstjórnin sendir þjóðinni skilaboð: „Það er engin ástæða til ótta – en það er rík ástæða til að vera vel undirbúin”

Ríkisstjórnin sendir þjóðinni skilaboð: „Það er engin ástæða til ótta – en það er rík ástæða til að vera vel undirbúin”