fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Fréttir

Fann „lort“ í heimsendingu – „Ég kíkti í annan poka og sá niðurgang“

Kristinn H. Guðnason
Þriðjudaginn 12. desember 2023 22:00

Smith var mjög brugðið og hringdi í heilbrigðiseftirlitið.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Breskum manni að nafni Phil Smith brá heldur betur í brún þegar hann fann lort í heimsendingu sinni frá matvöruversluninni Iceland í nóvember síðastliðnum. Ýmislegt átti þó eftir að koma í ljós.

„Allur þessi kúkur datt út úr pokanum og ég fékk áfall. Ég velti fyrir mér hvað í ósköpunum þetta væri? Ég kíkti í annan poka og sá niðurgang. Ég er mjög klígjugjarn og fannst þetta hræðilegt og viðbjóðslegt,“ sagði Smith, sem er 59 ára gamall og býr í borginni Blackburn í norðvesturhluta Bretlands.

Blöðin Metro og Telegraph greina frá þessu.

Smith hafði verið á ferðalagi í um mánuð og ákvað að panta nokkuð stóra pöntun þegar hann kom heim. Það er um 150 punda virði eða rúmlega 26 þúsund króna.

Pokarnir með vörunum voru skildir eftir á ganginum við íbúðina í blokkinni hans. En þegar hann fór með þá inn í eldhús blasti óhroðinn við honum.

„Þetta er viðbjóðslegt. Ég hef engin önnur orð til að lýsa þessu. Ef ég vill vera útataður í skít þá fer ég og skrái mig í þáttinn I´m a Celebrity [raunveruleikasjónvarpsþáttur á ITV]“ sagði Smith.

Vildi ekki bætur

Smith hringdi samstundis í verslunina og bað þá um að koma að taka pokana. Hann bað ekki um neinar bætur fyrir þetta heldur aðeins viðurkenningu á því hvað hefði gerst.

Pokarnir voru fjarlægðir í kjölfarið og helgina eftir var Smith boðin endurgreiðsla fyrir vörurnar.

Það sem Smith fann í pokunum.

„Ég vildi bara endurgreiðslu en ekki neinar bætur. Ef þeir bjóða mér einhverjar bætur þá gef ég dýrahjálp þær,“ sagði Smith.

Smith hafði einnig samband við sveitarstjórnina og heilbrigðiseftirlitið og benti þeim á að gera úttekt hjá verslun Iceland í Hyndburn, þaðan sem hann pantaði téðar vörur.

Heilnæmi matvælanna ekki ógnað

Iceland gerði sína eigin rannsókn á innihaldi pokans og segja að kúkurinn sé í raun og veru alls ekki kúkur.

„Kvörtun viðskiptavinarins var ítarlega könnuð af starfsfólki Iceland og umhverfisheilbrigðisdeildar sveitarstjórnarinnar. Sveitarstjórn hefur staðfest að efnið sem viðskiptavinur okkar kvartaði yfir var einfaldlega pappi sem hafði breyst í gums þegar hann blotnaði og svo þornað,“ segir í yfirlýsingu.

Hafi heilnæmi matvælanna ekki verið ógnað á neinn hátt vegna þessa.

„Iceland hefur þegar beðið herra Smith afsökunar á að hafa valdið honum uppnámi vegna þessa misskilnings og endurgreitt honum fyrir vörurnar,“ segir enn fremur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Réttarhöld framundan í Edition-málinu – Sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana í hjartað

Réttarhöld framundan í Edition-málinu – Sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana í hjartað
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Dagur varpar ljósi á algenga mýtu í ESB-umræðunni: „Hlustum ekki á hræðsluáróður“

Dagur varpar ljósi á algenga mýtu í ESB-umræðunni: „Hlustum ekki á hræðsluáróður“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ósáttur við heilbrigðiseftirlitið, lögregluna og sýslumann – Hafi eyðilagt viðburð

Ósáttur við heilbrigðiseftirlitið, lögregluna og sýslumann – Hafi eyðilagt viðburð
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Pútín segir að aðeins tveir möguleikar séu í stöðunni í Úkraínu

Pútín segir að aðeins tveir möguleikar séu í stöðunni í Úkraínu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Gagnrýnir gagnrýni Snorra – „Gerið betur en gervigreind kæra stjórnarandstaða. Lygarnar eru allar ykkar megin“

Gagnrýnir gagnrýni Snorra – „Gerið betur en gervigreind kæra stjórnarandstaða. Lygarnar eru allar ykkar megin“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sætti sig ekki við að missa ökuskírteinið – Afleiðingarnar voru skelfilegar

Sætti sig ekki við að missa ökuskírteinið – Afleiðingarnar voru skelfilegar