fbpx
Þriðjudagur 16.desember 2025
Fréttir

Húsbrot, nauðgun og hótanir á Akureyri – „Ég slæ þig fokking fast utan undir ef þú fokking heldur ekki kjafti“

Ágúst Borgþór Sverrisson
Þriðjudaginn 28. nóvember 2023 19:00

Héraðsdómur Norðurlands eystra

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þann 6. desember verða réttarhöld við Héraðsdóm Norðurlands eystra yfir manni sem ákærður hefur verið fyrir húsbrot, nauðgun og hótanir gagnvart fyrrverandi unnustu sinni.

Maðurinn er sakaður um að hafa ruðst heimildarlaust inn á heimili konunnar á nýársdag 2022 og nauðgað henni.

Ellefu dögum síðar, þann 12. janúar 2022, er maðurinn sakaður um að hafa farið heimildarlaust inn á heimili konunnar á Akureyri og ekki farið þaðan þrátt fyrir að hún ítrekað bæði hann að fara, og í sama skipti tekið í hár hennar, gripið um hendur hennar og snúið upp á þær, í tvígang slegið hana í rassinn og hótað henni með því að segja:

„Þegiðu og hlustaðu. Þú ert fífl. Ég slæ þig fokking fast utan undir ef þú fokking heldur ekki kjafti. Er þetta þakklætið fyrir að, horfðu á mig, horfðu á mig. Er þetta þakklætið fyrir það að ég sit fyrir framan dómstóla og játa milljón króna bótakröfu. Á ég ekki bara að kýla þig einu sinni og þá erum við kvitt, ha?“

Maðurinn er síðan sakaður um að hafa daginn eftir, þann 13. janúar 2022, farið í óleyfi inn til konunnar og neitað að yfirgefa heimilið þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir hennar um það. Hann er síðan sagður hafa slegið hana utan undir.

Héraðssaksóknari krefst þess að maðurinn verði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar.

Fyrir hönd konunnar er gerð krafa um miskabætur upp á þrjár milljónir króna.

Búast má við að dómur falli í málinu rétt fyrir áramót.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Eigendur einbýlishúsa óánægðastir með gæludýrafrumvarpið

Eigendur einbýlishúsa óánægðastir með gæludýrafrumvarpið
Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Sakar Sjálfstæðismenn um hræsni og segir að af öllum lygum stjórnarandstöðunnar sé þessi sú svæsnasta

Sakar Sjálfstæðismenn um hræsni og segir að af öllum lygum stjórnarandstöðunnar sé þessi sú svæsnasta
Fréttir
Í gær

Segja stefna í óefni vegna vankunnáttu eldri borgara á tölvur

Segja stefna í óefni vegna vankunnáttu eldri borgara á tölvur
Fréttir
Í gær

Fór inn í kvennabúningsklefa í Sundhöllinni og handlék kynfæri sín fyrir framan stúlku í sturtu

Fór inn í kvennabúningsklefa í Sundhöllinni og handlék kynfæri sín fyrir framan stúlku í sturtu
Fréttir
Í gær

Helga ósátt við Bílastæðasjóð – Fær bílastæðasektir þrátt fyrir P-merki í bílglugganum

Helga ósátt við Bílastæðasjóð – Fær bílastæðasektir þrátt fyrir P-merki í bílglugganum
Fréttir
Í gær

Harpa hvetur fólk til að sleppa hamborgarhryggnum um jólin

Harpa hvetur fólk til að sleppa hamborgarhryggnum um jólin