fbpx
Sunnudagur 11.maí 2025
Fréttir

Unglingasamkvæmi í hesthúsahverfi leyst upp

Ragna Gestsdóttir
Laugardaginn 18. nóvember 2023 07:30

Mynd: Eyþór Árnason

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tæplega 70 mál voru skráð í kerfi lögreglunnar á næturvaktinni. Sjö aðilar gistu fangageymslur lögreglu eftir nóttina.

Nokkuð um ölvun & stimpingar í miðborginni. Tilkynnt unglingahóp utan við Hagkaup, Garðabæ. Þegar lögreglan kom á staðinn var þar fullt af unglingum á vappi en engin ölvun sjáanleg.

 Tilkynnt um unglingasamkvæmi í uppsiglingu í hesthúsahverfi í umdæmi Kópavogs/Breiðholts. Þegar lögreglan kom á staðinn var þar hávær tónlist og hópur af ungmennum, undir lögaldri, að halda sameiginlegt afmæli.  Flestir fljótir að forða sér þegar lögreglu bar að garði – þó náðist tal af gestgjöfum. Þeim gerð grein fyrir að foreldrum og barnavernd yrði gert viðvart um afskipti lögreglu. Allt áfengi haldlagt. Allir unglingarnir kurteisir og skyldu afskipti lögreglu.

Tilkynnt um aðila í tökum á skemmtistað í hverfi 111. Hann hafði reynt að ráðast á dyraverði en uppskar ekki árangur erfiðis. Var sendur heim að sofa úr sér. Tilkynnt um aðila sem neitaði að fara út af skyndibitastað, eftir að hafa fengið að nota þar snyrtinguna. Henni vísað út af lögreglu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Minnst sjö hafa kært Írisi Helgu fyrir umsáturseinelti

Minnst sjö hafa kært Írisi Helgu fyrir umsáturseinelti
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Staksteinar gera stólpagrín að borgarfulltrúa Pírata

Staksteinar gera stólpagrín að borgarfulltrúa Pírata
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þurfa að búa áfram við skothvelli – Fengu sólarhring til að senda inn athugasemdir

Þurfa að búa áfram við skothvelli – Fengu sólarhring til að senda inn athugasemdir
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hvetur héraðssaksóknara og ríkissaksóknara til að segja af sér

Hvetur héraðssaksóknara og ríkissaksóknara til að segja af sér