fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Þorvaldur segir að kvikan hafi færst ofar – „En það er eitthvað sem virðist tefja hana“

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 15. nóvember 2023 06:40

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þorvaldur Þórðarson, prófessor í eldfjallafræði við Háskóla Íslands, segir að miðað við nýjar mælingar á brennisteinsgasi þá megi ráða að kvika hafi færst ofar í jarðskorpuna og sé hún nú hugsanlega á 400 til 500 metra dýpi.

„Ef þetta er brennisteinn sem er að koma beint úr kvikunni, þá er hún komin það grunnt,“ sagði hann í samtali við Morgunblaðið.

Hann sagði að kvika þurfi að vera komin á um 500 metra dýpi til að brennisteinsgas losni úr henni. Þegar þrýstingur lækki geti gas losnað úr henni.

Hann sagðist aðspurður ekki geta fullyrt að eldgos sé í aðsigi: „Ég veit það ekki, maður hefði haldið það, en það er eins og að það sé líka ein hver fyrirstaða,“ sagði hann og bætti við að eitthvað virðist tefja uppgöngu kvikunnar, að minnsta kosti í Grindavík. Það sé bara hið besta mál því þá reyni hún að finna sér aðra leið upp.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fastus afhenti Brunavörnum Rangársýslu nýjan dælubíl

Fastus afhenti Brunavörnum Rangársýslu nýjan dælubíl
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Heimsfrægur trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli – „Þeir sögðu mér að taka farangurinn minn og fylgja þeim“

Heimsfrægur trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli – „Þeir sögðu mér að taka farangurinn minn og fylgja þeim“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Gunnar Smári kemur RÚV til varnar – „Skammarlegt að lesa einhverjar vandlætingargreinar um blaðamennsku Þóru“

Gunnar Smári kemur RÚV til varnar – „Skammarlegt að lesa einhverjar vandlætingargreinar um blaðamennsku Þóru“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Björn afþakkaði boð Melaniu Trump

Björn afþakkaði boð Melaniu Trump
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Skipið sem var haldlagt suður af Íslandi flutt til Bandaríkjanna – Verður gert upptækt

Skipið sem var haldlagt suður af Íslandi flutt til Bandaríkjanna – Verður gert upptækt
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Unglingar sakfelldir fyrir líkamsárás á Akranesi – Brotaþoli átti að hafa verið í samskiptum við kærustu annars þeirra

Unglingar sakfelldir fyrir líkamsárás á Akranesi – Brotaþoli átti að hafa verið í samskiptum við kærustu annars þeirra