fbpx
Þriðjudagur 17.febrúar 2026
Fréttir

Stýrivextir verða áfram 9,25 prósent – Dregur úr vexti efnahagsumsvifa

Kristinn H. Guðnason
Miðvikudaginn 4. október 2023 08:55

Peningastefnunefnd Seðlabankans. Mynd/Seðlabanki Íslands

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stýrivextir verða óbreyttir í 9,25 prósentum. Þetta ákvað Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands eins og fram kemur í tilkynningu í morgun.

Kemur fram að í heildina litið hafi þróun efnahagsmála verið í samræmi við mat nefndarinnar á síðasta fundi. Verðbólga jókst og var 8 prósent í september. Verðbólga án húsnæðis hækkað einnig en undirliggjandi verðbólga hefur hjaðnað lítillega.

„Vísbendingar eru um að heldur hafi dregið úr tíðni verðhækkana og að þær séu ekki á eins breiðum grunni og áður. Þótt verðbólguvæntingar séu áfram of háar hafa þær lækkað á suma mælikvarða,“ segir í tilkynningunni.

Hagvöxtur var 5,8 prósent á fyrri hluta ársins sem er lækkun frá fyrra ári, en þá var hann 7 prósent. Hægt hefur á vexti efnahagsumsvifa og vísbendingar eru um að skerpst hafi á þeirri þróun á þriðja ársfjórðungi.

Spenna á vinnumarkaði og í þjóðarbúskapnum

Spenna er hins vegar enn þá á vinnumarkaðinum og þjóðarbúskapnum í heild. Raunvextir bankans hafa hækkað það sem af er ári og áhrifin farin að koma fram í meira mæli.

„Á þessum tímapunkti er nokkur óvissa um efnahagsframvinduna og hvort núverandi taumhald sé nægjanlegt,“ segir í tilkynningunni. „Nefndin hefur því ákveðið að staldra við en á næsta fundi mun liggja fyrir ný þjóðhags- og verðbólguspá bankans. Peningastefnan mun á næstunni ráðast af þróun efnahagsumsvifa, verðbólgu og verðbólguvæntinga.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Önnur úkraínsk flóttakona myrt í Norður Karólínu á aðeins hálfu ári – Morðinginn handtekinn á flótta

Önnur úkraínsk flóttakona myrt í Norður Karólínu á aðeins hálfu ári – Morðinginn handtekinn á flótta
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Afi frá helvíti ákærður fyrir kynferðisbrot gegn barnabarni sínu

Afi frá helvíti ákærður fyrir kynferðisbrot gegn barnabarni sínu
Fréttir
Í gær

Hafrún er komin með nóg af þessari umræðu um afreksfólk – „Gengur ekki að það sé ráðist á það fyrir það í heimspressunni“

Hafrún er komin með nóg af þessari umræðu um afreksfólk – „Gengur ekki að það sé ráðist á það fyrir það í heimspressunni“
Fréttir
Í gær

Bandaríkjamaður viðurkenndi að íslenska leiguíbúðin væri illa þrifin – Fékk samt megnið af tryggingunni til baka

Bandaríkjamaður viðurkenndi að íslenska leiguíbúðin væri illa þrifin – Fékk samt megnið af tryggingunni til baka
Fréttir
Í gær

Hefur efasemdir um vopnakaup Íslendinga til Úkraínu og spyr hvort Ísland verði krafið um að koma upp eigin her

Hefur efasemdir um vopnakaup Íslendinga til Úkraínu og spyr hvort Ísland verði krafið um að koma upp eigin her
Fréttir
Í gær

Elías segir að borgarlína sé óþörf og muni gera umferðina verri

Elías segir að borgarlína sé óþörf og muni gera umferðina verri
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hlý orð verslunareigenda á Laugavegi um einn af góðkunningjum miðbæjarins vekja athygli – „Æ er hann dáinn elsku karlinn“

Hlý orð verslunareigenda á Laugavegi um einn af góðkunningjum miðbæjarins vekja athygli – „Æ er hann dáinn elsku karlinn“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fokreiddist þegar dýrin urðu dauðskelkuð enn á ný – Mátt þola þjófnaði, skemmdarverk og ógnanir – „Eitthvað brast innra með mér“

Fokreiddist þegar dýrin urðu dauðskelkuð enn á ný – Mátt þola þjófnaði, skemmdarverk og ógnanir – „Eitthvað brast innra með mér“