fbpx
Mánudagur 11.desember 2023
Fréttir

Magnús sást stíga inn í bifreið við flugvöllinn – Farangurinn á leið til Íslands

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 3. október 2023 14:20

Farangur Magnúsar er á leið til Íslands.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rannsóknarlögreglumenn í Dóminíska lýðveldinu fóru á alþjóðaflugvöllinn í Las Americas á dögunum þar sem farið var yfir upptökur úr öryggismyndavélum í tengslum við hvarf Magnúsar Kristins Magnússonar.

Ekkert hefur spurst til Magnúsar síðan 12. september síðastliðinn, en þann dag átti hann bókað flug frá karabísku eyjunni til Frankfurt í Þýskalandi. Hann skilaði sér aftur á móti ekki í flugið.

RÚV greinir frá því í dag að farangur Magnúsar sé nú á leið til Íslands og þá njóti fjölskylda hans liðsinnis lögfræðings í Dóminíska lýðveldinu. Sá hafi fullvissað fjölskylduna um að málið sé rannsakað af fullum þunga og á meðan sé fjölskylda Magnúsar beðin um að halda sig til hlés.

Sást fara inn í bíl

Nokkuð hefur verið fjallað um málið í fjölmiðlum í Dóminíska lýðveldinu. Listin Diario greindi frá því í gær að á upptökum sem lögregla skoðaði hafi Magnús sést yfirgefa flugvöllinn og stíga upp í óþekkta bifreið sem var síðan ekið á brott. Óvíst er hvert bifreiðin fór. Ekki kemur fram hvort Magnús hafi farið upp í bílinn sem farþegi eða sem ökumaður.

Er lögregla sögð hafa leitað Magnúsar á hótelum og spilavítum á ferðamannastöðum eins og Boca Chica, Juan Dolio og La Romana en án árangurs. Þá hafi verið skoðað hvort Magnús hafi farið úr landi í gegnum aðra flugvelli í landinu en ekkert bendi til þess.

Magnús kom til Dóminíska lýðveldisins þann 3. september síðastliðinn frá Madríd á Spáni.

Margir komið að leitinni

Auk þess að njóta liðsinnis lögfræðings hefur fjölskylda Magnúsar notið stuðnings utanríkisráðuneytisins og alþjóðadeildar lögreglunnar. Þá sagði systir Magnúsar, Rannveig Karlsdóttir, í samtali við DV um miðjan september að æskuvinir Magnúsar hefðu verið fjölskyldunni stoð og stytta.

 „Þeir hafa lagt nótt við dag upp á síðkastið við að hringja, skrifa, reyna að reikna út ferðir og fleira. Það hefur verið okkur ómetanleg aðstoð,“ sagði Rannveig meðal annars.

DV ræddi á dögunum við vin Magnúsar sem sagði að hann hefði skilið farangurinn sinn eftir á flugvellinum og sést með vegabréf og farmiða þegar hann yfirgaf flugstöðvarbygginguna. „Þetta var látlaus farangur, ekki taska á hjólum,“ sagði vinurinn og bætti við að lögregla hefði meðal annars skoðað mögulegar vísbendingar í farangri hans, en þar var meðal annars að finna kvittanir og heimilisföng.

Horfinn síðan 10. september – Lögregla rannsakar mögulegar vísbendingar í farangri Magnúsar

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Öryggisgæsla hert eftir uppákomuna á föstudag – Fulltrúar erlendra ríkja undrandi

Öryggisgæsla hert eftir uppákomuna á föstudag – Fulltrúar erlendra ríkja undrandi
Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Veðrið tekur stakkaskiptum í vikunni – Hvassviðri, rigning og snjókoma í kortunum

Veðrið tekur stakkaskiptum í vikunni – Hvassviðri, rigning og snjókoma í kortunum
Fréttir
Í gær

Vilja banna eða herða reglur um rafskútuleigur – Reynslan sýni slæma umgengni

Vilja banna eða herða reglur um rafskútuleigur – Reynslan sýni slæma umgengni
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Falsfrétt um að að Ísland hafi bannað covid bóluefni gengur um netheima

Falsfrétt um að að Ísland hafi bannað covid bóluefni gengur um netheima
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Heimilishrotti hlaut 12 mánaða dóm fyrir ofbeldi gegn barnsmóður og þriggja vikna barni þeirra – Fékk 4 ára dóm 2017 fyrir enn grófara ofbeldi gegn fyrri sambýliskonu

Heimilishrotti hlaut 12 mánaða dóm fyrir ofbeldi gegn barnsmóður og þriggja vikna barni þeirra – Fékk 4 ára dóm 2017 fyrir enn grófara ofbeldi gegn fyrri sambýliskonu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Pétur fer yfir stöðuna og framtíðarlausnir í málum Grindvíkinga – „Ljóst að einhver er að fá sér ábót af kökunni og láta aðra greiða fyrir þessa ábót“

Pétur fer yfir stöðuna og framtíðarlausnir í málum Grindvíkinga – „Ljóst að einhver er að fá sér ábót af kökunni og láta aðra greiða fyrir þessa ábót“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Landsréttur staðfestir 16 ára fangelsisdóm yfir Magnúsi Aroni

Landsréttur staðfestir 16 ára fangelsisdóm yfir Magnúsi Aroni
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Signý getur ekki orða bundist: Segir að þetta verði aldrei framar í boði á hennar heimili

Signý getur ekki orða bundist: Segir að þetta verði aldrei framar í boði á hennar heimili