fbpx
Mánudagur 15.desember 2025
Fréttir

Þingmaður segir Reykjavíkurborg vera á móti auknu umferðarflæði

Ritstjórn DV
Mánudaginn 2. október 2023 09:00

Samsett mynd- Ljósmynd: DV/Hanna

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Snjallljósavæðing í höfuðborginni þolir enga bið að mati Vilhjálms Árnasonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins. Hann segir að borgin sé á móti auknu flæði almennrar umferðar, þvert á það sem kemur fram í samgöngusáttmálanum.

Morgunblaðið skýrir frá þessu í dag og hefur eftir Vilhjálmi að hann hafi lagt mikla áherslu á að þetta væri í forgangi þegar samgönguáætlunin var kláruð áður en samgöngusáttmálinn var undirritaður. Ástæðan sé að þetta sé hagkvæmasta og fljótasta lausnin til að ná einhverjum úrbótum fram.

Á næsta borgarstjórnarfundi hyggst Marta Guðjónsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, leggja fram tillögu er varðar endurskoðun samgöngusáttmálans. Hún hyggst leggja til að snjallljósastýring verði gerð að algjöru forgangsverkefni hvað varðar tímaramma þegar kemur að endurskoðun sáttmálans.

Í tillögu hennar er miðað við að allra nýjasta tækni verði innleidd en hún byggist á miðlægu tölvukerfi sem notar innrauðar myndavélar, radar og gervigreind til að greina alla umferð.

Vilhjálmur sagðist ætla að fylgja því eftir á Alþingi að uppfærður samgöngusamningur verði tekinn fyrir og að umferðarstýring verði sett í forgang. „Við þurfum að nota allar leiðir til þess að gera eitthvað í þessum umferðarvandamálum sem eru á höfuðborgarsvæðinu. Það sem snjallljósin gera er að nota nýjustu tækni til þess að greiða eins mikið og mögulegt er úr umferðinni miðað við þá innviði sem við höfum núna, án skipulagsbreytinga og án kostnaðarsamra framkvæmda,“ sagði hann.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Talað um afturför í menntamálum: „Það er eins og það megi ekki umbuna fyrir dugnað“

Talað um afturför í menntamálum: „Það er eins og það megi ekki umbuna fyrir dugnað“
Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Ekkert lát á hrikalegum inflúensufaraldri – Óttast að staðan muni versna enn frekar

Ekkert lát á hrikalegum inflúensufaraldri – Óttast að staðan muni versna enn frekar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kolla hefur samúð með Þórunni: „Getur ekki verið skemmtilegt hlutskipti að vera skyldaður til að hlusta á stjórnarandstöðu landsins“

Kolla hefur samúð með Þórunni: „Getur ekki verið skemmtilegt hlutskipti að vera skyldaður til að hlusta á stjórnarandstöðu landsins“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

„Kaffistofan er ekki endastöð, hún getur verið upphaf að nýju lífi“

„Kaffistofan er ekki endastöð, hún getur verið upphaf að nýju lífi“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

„Ég fór beyglaður út í lífið, með beyglaða sýn á lífið“

„Ég fór beyglaður út í lífið, með beyglaða sýn á lífið“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Inga hjólar í Viðskiptablaðið – „Mér leiðast svona falsfréttir og ég hvet ykkur til að vera gagnrýnin“

Inga hjólar í Viðskiptablaðið – „Mér leiðast svona falsfréttir og ég hvet ykkur til að vera gagnrýnin“