fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Morðrannsókn hafin eftir að 10 ára stúlka fannst látin í dag

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 10. ágúst 2023 20:00

Mynd: Facebook-síða lögreglunnar í Surrey.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tíu ára stúlka fannst í dag látin á heimili við Hammond Road í Surrey-sýslu í suðvesturhluta Englands. Frá þessu er meðal annars greint frá á Facebook-síðu lögreglunnar í Surrey. Dauði hennar er rannsakaður sem mögulegt morð.

Í tilkynningu lögreglunnar fram að lögreglumenn hafi komið að húsi vi Hammond Road laust fyrir kl. 15 í eftirmiðdaginn (að staðartíma) þar sem óttast var um öryggi fólks. Við komu hafi 10 ára stúlka fundist látin á vettvangi. Segir að fjölskylda stúlkunnar hafi verið látin vita um lát hennar og fólkið njóti núna stuðnings sérþjálfaðra lögreglumanna.

Lögregla hefur hafið rannsókn á andláti stúlkunnar. Yfirlögregþjónn rannsóknardeildarinnar, Debbie White, segir:

„Þetta er hörmulegur atburður en rannsóknarlögreglumenn okkar eru að vinna hörðum höndum að því að draga upp mynd af því hvað gerðist. Við höfum greint fjölda einstaklinga sem við viljum tala við sem hluta af eftirgrennslan okkar, en á þessu stigi er ekki útlit fyrir að við berum kennsl á fleiri aðila í tengslum við rannsóknina. Við teljum engu hættu stafa að almenningi í tengslum við málið.“

Fjölmargir lögreglumenn eru að vinna að rannsókn málsins á vettvangi. Segir í tilkynningunni að búast megi við því að lögreglan gefi frekari upplýsingar um málið „um leið og við erum í aðstöðu til þess,“ eins og segir þar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fastus afhenti Brunavörnum Rangársýslu nýjan dælubíl

Fastus afhenti Brunavörnum Rangársýslu nýjan dælubíl
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Heimsfrægur trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli – „Þeir sögðu mér að taka farangurinn minn og fylgja þeim“

Heimsfrægur trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli – „Þeir sögðu mér að taka farangurinn minn og fylgja þeim“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Gunnar Smári kemur RÚV til varnar – „Skammarlegt að lesa einhverjar vandlætingargreinar um blaðamennsku Þóru“

Gunnar Smári kemur RÚV til varnar – „Skammarlegt að lesa einhverjar vandlætingargreinar um blaðamennsku Þóru“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Björn afþakkaði boð Melaniu Trump

Björn afþakkaði boð Melaniu Trump
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Skipið sem var haldlagt suður af Íslandi flutt til Bandaríkjanna – Verður gert upptækt

Skipið sem var haldlagt suður af Íslandi flutt til Bandaríkjanna – Verður gert upptækt
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Unglingar sakfelldir fyrir líkamsárás á Akranesi – Brotaþoli átti að hafa verið í samskiptum við kærustu annars þeirra

Unglingar sakfelldir fyrir líkamsárás á Akranesi – Brotaþoli átti að hafa verið í samskiptum við kærustu annars þeirra