fbpx
Laugardagur 17.maí 2025
Fréttir

Rauði krossinn mismunaði konu vegna kyns hennar

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 9. ágúst 2023 09:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kona, sem var ráðin til starfa hjá Rauða krossi Íslands (RKÍ) í september 2020, fékk lægri laun en karlmaður sem starfaði einnig sem lögfræðingur hjá RKÍ. Þetta ástand varði í átta mánuði.

Morgunblaðið skýrði fyrst frá þessu en málið er reifað í úrskurði kærunefndar jafnréttismála.

Eins og fyrr segir var konan ráðin til starfa í september 2020 og mánuði síðar var karlmaðurinn ráðinn til sömu starfa samkvæmt starfslýsingu. Hann fékk þá lægri laun en konan en samkvæmt samningi hans átti að endurskoða laun hans eftir fjóra mánuði.

Þá voru þau hækkuð en ekki laun konunnar. Hún var þvi með lægri laun frá því í apríl 2021 þar til í desember sama ár.

Laun hennar voru hækkuð 1. janúar 2022 þegar upp komst að munur var á launum hennar og karlsins. Hún krafðist þá afturvirkrar launaleiðréttingar en því hafnaði RKÍ.

Kærunefndin skoðaði hvort RKÍ hefði brotið gegn lögum með þessum launamismun og hvort ákvæði í ráðningarsamningi fólksins, um endurskoðun launa, bryti gegn ákvæðum jafnréttislaga. RKÍ greip til varna og hélt því fram að konan hefði ekki lögvarða hagsmuni af úrlausn málsins þar sem RKÍ hefði viðurkennt mistökin, sent henni skriflega afsökunarbeiðni og staðfest að RKÍ myndi læra af reynslunni og gera betur í framtíðinni.

Konan reyndi að ná sáttum við RKÍ eftir að málið var komið til meðferðar hjá kærunefndinni og krafðist þess að fá launamismuninn greiddan. RKÍ féllst ekki á það í upphafi en viðurkenndi í lok maí á síðasta ári að mistök hefðu verið gerð og greiddi henni launamismuninn.

Taldi kærunefndin að RKÍ hefðu ekki talið unnt að réttlæta launamuninn á hlutlægan og málefnalega hátt og að RKÍ hefði því mismunað konunni á grundvelli kyns hennar í átta mánuði.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Írska lögreglan styðst við sýnir miðla í leitinni að Jóni Þresti

Írska lögreglan styðst við sýnir miðla í leitinni að Jóni Þresti
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Margeiri dæmdar miskabætur vegna flutnings í starfi- Átti í ástarsambandi við samstarfskonu sem kvartaði undan honum

Margeiri dæmdar miskabætur vegna flutnings í starfi- Átti í ástarsambandi við samstarfskonu sem kvartaði undan honum
Fréttir
Í gær

Óttast að ákvæðið verði notað til að hindra að fatlað fólk flytji í Hafnarfjörð – „Ætti að geta valið sér búsetu eins og aðrir í samfélaginu“

Óttast að ákvæðið verði notað til að hindra að fatlað fólk flytji í Hafnarfjörð – „Ætti að geta valið sér búsetu eins og aðrir í samfélaginu“
Fréttir
Í gær

Þrír með stöðu sakbornings vegna brunans á Stuðlum þegar 17 ára piltur lést

Þrír með stöðu sakbornings vegna brunans á Stuðlum þegar 17 ára piltur lést
Fréttir
Í gær

Angjelin Sterkaj gifti sig í Grundarfjarðarkirkju – Afplánar dóm fyrir morðið í Rauðagerði

Angjelin Sterkaj gifti sig í Grundarfjarðarkirkju – Afplánar dóm fyrir morðið í Rauðagerði
Fréttir
Í gær

Guðni snýr sér að Kristrúnu og skorar á hana – Úlfari kastað út eins og hundi á hnakkadrambinu

Guðni snýr sér að Kristrúnu og skorar á hana – Úlfari kastað út eins og hundi á hnakkadrambinu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fjölskylduhjálp Íslands fékk ekki styrk í ár því samtökin sóttu ekki um hann

Fjölskylduhjálp Íslands fékk ekki styrk í ár því samtökin sóttu ekki um hann
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Flóttamaður grunaður um hrottaleg brot gegn eiginkonu sinni og fimm börnum

Flóttamaður grunaður um hrottaleg brot gegn eiginkonu sinni og fimm börnum