fbpx
Mánudagur 19.maí 2025
Fréttir

Edda neitar því að hafa ekki setið af sér fangelsisdóm – „Aftur er verið að biðja um að fá mig framselda á röngum forsendum“

Ágúst Borgþór Sverrisson
Fimmtudaginn 27. júlí 2023 11:25

Edda Björk Arnardóttir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Edda Björk Arnardóttir, sem hefur fengið á sig kröfu um handtöku og framsal til Noregs, segir kröfuna vera á röngum forsendum. Í DV kom fram í gær og aftur í Morgunblaðinu í dag að Edda Björk var árið 2020 dæmd í sex mánaða fangelsi í Noregi fyrir að nema syni sína á brott til Íslands árið 2019. Lögfræðingur barnsföður Eddu, Sjak R. Haaheim, segir að ekki hafi tekist að að fullnusta dóminn. Edda segir hins vegar á Facebook-síðu sinni í dag að norsk yfirvöld hafi óskað þess að dómurinn yrði fullnustaður á Íslandi og segist Edda hafa tekið út refsingu sína í formi samfélagsþjónustu.

Eddu hefur nú verið stefnt fyrir dóm í Noregi fyrir að hafa flutt syni sína þrjá í einkaflugvél til Íslands í  lok mars árið 2022. Faðir þeirra, sem býr í Noregi, fer með forræði þeirra en drengirnir hafa verið á Íslandi frá því Edda kom með þá til landsins í fyrra.

Sjá einnig: Edda hlaut fangelsisdóm í Noregi árið 2020 – Norskur lögfræðingur þungorður í garð íslenskra stjórnvalda

Haaheim sagði í tölvupósti til DV í gær að faðir drengjanna sé vonsvikinn yfir getuleysi íslenskra yfirvalda við að framfylgja úrskurðum dómstóla í málinu en íslenskir dómstólar hafa úrskurðað að Eddu beri að fara með drengina til Noregs og afhenda barnsföður þeirra þá. Úrskurðunum hefur hins vegar enn ekki verið framfylgt.  „Næst gæti Ísland þurft hjálp frá Noregi vegna lögsóknar í sakamáli eða til að snúa við brottnumdum íslenskum börnum. Skjólstæðingur minn væntir þess að Ísland uppfylli skuldbindingar sínar við vinveitt nágrannaríki og fullnusti úrskurði íslenskra dómstóla varðandi það að snúa brottnumdum börnum til síns heima, og uppfylli beiðni norskra yfirvalda um handtöku og framsal, svo hin ákærða, og áður dæmda manneskja verði látin gangast undir sanngjörn réttarhöld fyrir alvarlegan glæp í vinveittu nágrannaríki, í samræmi við reglur réttarríkisins,“ segir Haaheim.

Blaðamaður Morgunblaðsins spyr Haaheim ítrekað hvort vilji barnanna sjálfra eigi ekki að ráða. Haaheim segir: „Þetta hef­ur ekk­ert með börn­in að gera, svona eru lög­in bara hér í Nor­egi og það eru þau einnig á Íslandi. Þú get­ur haft hvaða skoðun sem er á þeim dómi sem þér er dæmd­ur en þú verður að sæta þeim dómi.“

Haaheim segir að framferði Eddu í málinu flokkist undir mannrán. Edda segir hins vegar að norsk yfirvöld virði að vettugi vilja barna hennar í málinu. Hún skrifar á Facebook-síðu sína í dag:

„Drengirnir eru á þrettánda ári og að verða tíu ára og þeirra skoðun skiptir bara akkurat engu máli!

Mér finnst það lýsa vel hæfni einstaklings til að fara með forræði barns, að skoðun barnsins í svona veigamiklum þætti í lífinu skipti engu máli.

Hann hefur líka sýnt að það eina sem skiptir hann máli er að hafa rétt fyrir sér og fá sínu framgengt því ekki hefur hann haft áhuga á að tala við syni undanfarna 16 mánuði nema í heilar 20 mínútur í allt. Þó að honum hafi verið oft boðið að bæði tala við þá og hitta.

Fyrir utan að lögmaðurinn heldur áfram að fara ekki rétt með sannleikann og segir að ég eigi eftir að afplána dóminn frá 2020 og þess vegna beri mér að koma til Noregs. Norsk yfirvöld sendu sjálf dóminn til Fangelisstofnunar og báðu um að honum yrði fullnustað hérna. Sem var svo gert og er ég að sinna samfélagsþjónustu.

Það sem þessi blessaði lögmaður gerði svo 2022 var að fá dómara með sér í að reyna að fá mig framselda til Noregs á þeim grundvelli að ég ætti eftir að fullnusta dóminn í Noregi, því var hafnað af dómstólum hérna af þeirri augljósu ástæðu sem að framan greinir.

Þetta er svo mikil vitleysa og aftur er verið að biðja um að fá mig framselda á röngum forsendum.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Árásarmaður Rushdie fær þungan dóm

Árásarmaður Rushdie fær þungan dóm
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ósátt við að refaskytta hafi verið valin með hlutkesti

Ósátt við að refaskytta hafi verið valin með hlutkesti
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Margeiri dæmdar miskabætur vegna flutnings í starfi- Átti í ástarsambandi við samstarfskonu sem kvartaði undan honum

Margeiri dæmdar miskabætur vegna flutnings í starfi- Átti í ástarsambandi við samstarfskonu sem kvartaði undan honum
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Allt á suðupunkti í Grafarvogi: „Örfáir sem við erum búin að hitta sem eru ekki brjálaðir“

Allt á suðupunkti í Grafarvogi: „Örfáir sem við erum búin að hitta sem eru ekki brjálaðir“