Aflandsfélag stefndi íslensku félagi fyrir dóm vegna meintrar skuldar. Skuldin mun hafa orðið til sökum þess að forsvarsmaður aflandsfélagið reiddi af hendi fjármálastjórn í þágu íslenska félagsins og átti samkvæmt munnlegu samkomulagi að fá þá vinnu greidda. Slík hafi þó ekki orðið raunin. Héraðsdómur Reykjavíkur féllst í dag á kröfu íslenska félagsins og vísaði málinu frá dómi.
Aflandsfélagið heitir GX Holding og er forsvarsmaður þess Guðfinna Magney Sævarsdóttir. Félagið var stofnað á Cayman-eyjum árið 2013 og kom fyrir í Panamaskjölunum svokölluðu.
Á þeim tíma átti þáverandi sambýlismaður hennar, Hilmar Ágúst Hilmarsson, félagið með henni.
Nú hefur þó slitnað upp úr sambandi þeirra. Hilmar er aftur á móti forsvarsmaður íslenska félagsins ACE FBO Reykjavík ehf. sem hefur aðsetur á Reykjavíkurflugvelli og sinnir þjónustustarfsemi tengdri flutningum með flugi.
DV hefur áður fjallað um farsakenndan rekstur Hilmars á Reykjavíkurflugvelli, en um hann má lesa nánar hér.
Í þessu máli var því í reynd Guðfinna að stefna Hilmari vegna þeirrar vinnu sem hún telur sig hafa unnið í þágu félags hans, án þess að hafa fengið greitt það sem henni var lofað.
Dómari leit til þess að þar sem félag Guðfinnu væri stofnað og skráð á Cayman-eyjum með milligöngu viðskiptaþjónustuaðila. Vafi væri þó um hvort félagið væri enn skráð með tilskildum hætti. Nýleg gögn bendi tl þess að félagið sé í vanskilum með gjöld og hefði ekki staðið skil á tilkynningum til þar til bærra aðila í Caymaneyjum, en mögulega hafi það haft áhrif á skráningu félagsins, rétt eins og hér á landi þegar félög vanrækja tilkynningarskyldu til hlutafélagaskrá.
Guðfinna hafi ekki brugðist við athugasemdum dómara með því að leggja fram gögn til að staðfesta rétta skráningu félags síns og þurfi hún því að bera hallann af því. Gat dómari því ekki staðfest að aflandsfélagið hefði aðildarhæfi hér á landi og var málinu vísað frá og Guðfinnu gert að greiða Hilmari 450 þúsund krónur í málskostnað.
Áhugavert er að Hilmar bar því einmitt við að félag hans fyrrverandi gæti ekki haft aðild með vísan til einmitt Panama-skjalanna.