Mikið hefur verið fjallað um ofbeldi barna og unglinga undanfarið. Meðal frétta sem vakið hafa athygli er frásögn af óhugnanlegri hópárás sem 13 ára drengur varð fyrir miðvikudaginn 19. apríl. Hópur 13 til 16 ára unglinga réðst á hann með höggum og spörkum og var hann meðal annars nefbrotinn.
Gögn af samfélagsmiðlum sýna að árásin var undirbúin með hópmyndun. Lögreglan rannsakar málið og tekur það mjög alvarlega, samkvæmt heimildum. Heimildarmaður DV segir kjarna árásarmanna vera nemendur við Álftamýrarskóla og að árásin sé hluti af langvarandi eineltisvandamálum við skólann. Drengurinn sem varð fyrir árásinni er fyrrverandi nemandi við skólann en þurfti að hætta námi þar vegna eineltis, sem að sögn aðstandenda var ekki brugðist við af hálfu skólans.
Þessu er skólastjóri Álftamýrarskóla, Hanna Guðbjörg Birgisdóttir, ekki sammála. Í svari hennar við fyrirspurn DV um málið segir:
„Skólastjórnendur heyrðu fyrst af árásinni í fjölmiðlum í gær og hafa kynnt sér málið í framhaldinu. Samkvæmt okkar vitneskju varð árásin utan skólatíma og ekki á lóð skólans. Eftir því sem við komust næst voru þeir sem stóðu að árásinni ekki nemendur við skólann. Skólinn getur ekki tjáð sig nánar um þetta einstaka mál eða málefni einstakra barna.“
Hanna segir ennfremur:
„Árásir sem þessi og einelti almennt er alltaf litið alvarlegum augum. Í 400 barna skóla geta komið upp ýmis samskiptavandamál sem þarf að bregðast við. Álftamýrarskóli vinnur eftir verklagi Reykjavíkurborgar í samræmi við hvert tilvik eins og segir í reglugerð um ábyrgð og skyldur aðila skólasamfélagsins í grunnskólum segir: „Allir skólar skulu hafa heildstæða stefnu fyrir skólann til að fyrirbyggja og bregðast við líkamlegu, andlegu og félagslegu ofbeldi og félagslegri einangrun. Skólar skulu setja sér aðgerðaáætlun gegn einelti með virkri viðbragðsáætlun til að takast á við eineltismál í skólanum.“