fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Þórdís segir að tilefni sé til að auka eftirlit við Ísland

Ritstjórn DV
Föstudaginn 21. apríl 2023 09:00

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í ljósi umfjöllunar norrænna ríkisfjölmiðla um starfsemi og njósnir Rússar á Norðurlöndunum og norðurslóðum er ljóst að tilefni er til að auka eftirlit með íslensku landhelginni.

Þetta sagði Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, utanríkisráðherra, í samtali við Morgunblaðið. Hún nefndi í þessu samhengi að í kjölfar þess að Rússar hertóku Krím 2014 hafi Bandaríkjamenn aukið kafbátaeftirlit sitt.

„Eftirlit Bandaríkjamanna bæði úr lofti og úr hafi hefur verið að aukast og ef við setjum það í samhengi við ákvörðun mína að heimila kafbátum að koma hérna upp þá eykur það í sjálfu sér eftirlitið enda hafa þeir þar til nú þurft að verja nokkrum dögum í að sigla til Noregs til að komast upp. Af því leiðir að eftirlitið er að aukast og mun aukast,“ er haft eftir Þórdísi.

Það voru danskir, sænskir, norskir og finnskir ríkisfjölmiðlar sem köfuðu ofan í umfangsmikla njósnastarfsemi Rússa á norrænum hafsvæðum og í höfnum. Gera þeir út fimmtíu njósnaskip, sem eru meðal annars dulbúin sem togarar og rannsóknarskip.

Hvað varðar auknar fjárveitingar til varnarmála vegna starfsemi Rússa sagði Þórdís að almenn geta okkar í samstarfi innan NATO og á grundvelli tvíhliða varnarsamnings fari mjög saman við getu nágrannaríkja okkar. Til dæmis hafi ríkisstjórnin heimilað 15-20 milljarða uppbyggingu á birgðageymslu á Keflavíkursvæðinu og sjái Bandaríkjamenn um hana.

„Við gerum einnig ráð fyrir viðbótarfjármunum í varnartengd verkefni í fjármálaáætlun sem nú liggur fyrir þinginu, einmitt til að vera betur í stakk búin á breyttum tímum,“ sagði hún einnig.

Hvað varðar áhrif þess ef sæstrengirnir til landsins skemmast sagði hún að þar sé um viðkvæma innviði að ræða og ef þeir verði klipptir í sundur sé augljóst að það myndi hafa mikil áhrif hér á landi sem og á hinum Norðurlöndunum.

Hægt er að lesa nánar um málið í Morgunblaðinu í dag.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fastus afhenti Brunavörnum Rangársýslu nýjan dælubíl

Fastus afhenti Brunavörnum Rangársýslu nýjan dælubíl
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Heimsfrægur trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli – „Þeir sögðu mér að taka farangurinn minn og fylgja þeim“

Heimsfrægur trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli – „Þeir sögðu mér að taka farangurinn minn og fylgja þeim“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Gunnar Smári kemur RÚV til varnar – „Skammarlegt að lesa einhverjar vandlætingargreinar um blaðamennsku Þóru“

Gunnar Smári kemur RÚV til varnar – „Skammarlegt að lesa einhverjar vandlætingargreinar um blaðamennsku Þóru“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Björn afþakkaði boð Melaniu Trump

Björn afþakkaði boð Melaniu Trump
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Skipið sem var haldlagt suður af Íslandi flutt til Bandaríkjanna – Verður gert upptækt

Skipið sem var haldlagt suður af Íslandi flutt til Bandaríkjanna – Verður gert upptækt
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Unglingar sakfelldir fyrir líkamsárás á Akranesi – Brotaþoli átti að hafa verið í samskiptum við kærustu annars þeirra

Unglingar sakfelldir fyrir líkamsárás á Akranesi – Brotaþoli átti að hafa verið í samskiptum við kærustu annars þeirra