Lögreglan á Suðurnesjum er með til rannsóknar ætlað stórfellt brot í nánu sambandi og ætlaða tilraun til manndráps. Málið kom upp 25. febrúar. Karlmaður á fertugsaldri hefur verið í gæsluvarðhaldi síðan málið kom upp.
Rannsókn málsins er sögð umfangsmikil og er í algjörum forgangi hjá embætti Lögreglustjórans á Suðurnesjum.