Þetta eru áætlanir sem á að hrinda í framkvæmd í Moldóvu. CNN skýrir frá þessu.
Bandarískar leyniþjónustustofnanir telja að fólk, sem tengist rússnesku leyniþjónustunni, sé að undirbúa mótmæli í Moldóvu og sé markmiðið með þeim að reyna að „sviðsetja“ uppreisn gegn ríkisstjórn landsins. John Kirby, talsmaður bandaríska þjóðaröryggisráðsins og Hvíta hússins, skýrði frá þessu á fréttamannafundi á föstudaginn.
„Á meðan Moldóva reynir að aðlaga sig að Evrópu, teljum við að Rússar reyni að veikja moldóvsku ríkisstjórnina, líklega með það að markmiði að koma nýrri stjórn, sem er hliðhollari Rússum, til valda. Nánar tiltekið reyna ákveðnir Rússar, sem sumar tengjast rússnesku leyniþjónustunni, að sviðsetja og nota mótmæli í Moldóvu til að koma af stað uppreisn gegn ríkisstjórn landsins,“ sagði Kirby.
Hann sagði að bandarísk stjórnvöld telji að Rússar vinni einnig að því að dreifa röngum upplýsingum um stöðugleikann í Moldóvu og hafi rússneskir embættismenn til dæmis haldið því fram að Úkraínumenn séu að undirbúa árás á Transnistríu, sem er hérað í Moldóvu sem lýtur stjórn aðskilnaðarsinna sem njóta stuðnings Rússa.
Fyrir mánuði síðan sakaði Maia Sandu, forseti Moldóvu, Rússa um að vera að undirbúa valdarán í Moldóvu. Núverandi ríkisstjórn er Rússum þyrnir í augum því hún er hliðholl ESB.