Austurrískur faðir, Tom Landon að nafni, hefur verið handtekinn vegna gruns um að hafa misþyrmt sex börnum sínum með því að læsa þau inni niðri í vínkjallara undir húsi í Austurríki og leyfa þeim að dúsa þar. Það voru nágrannar Landon sem tilkynntu sáran grátur barna til lögreglunnar. Þegar lögreglu bar að garði að húsinu í bænum Obritz, skammt frá Vínarborg, réðst Landon til atlögu gegn tveimur lögreglumönnum með piparúða og var samviskusamlega snúinn niður.
Í umfjöllun Daily Mail kemur fram að Landon aðhyllist þeirri skoðun að mannkynið standi frammi fyrir skelfilegri vá og sé stöðugt undirbúinn fyrir slíkar dómsdagshamfarir. Þannig hafi hann og bresk eiginkona hans haldið sig að mestu leyti neðanjarðar í samtengdum vínkjöllurum við húsið í Obritz og þar hafi börnin, sem eru á aldrinum sex mánaða til sjö ára mátt dúsa. Í umfjöllun erlendra miðla kemur fram að Landon hafi dreymt um að hvert barn fengi sinn kjallara. Interpol rannsakar nú málið en börnin eru ekki ríkisborgarar í Austurríki.
Ekkert bendir enn sem komið til að börnin hafi orðið fyrir öðru líkamlegu eða kynferðislegu ofbeldi en málið þykir óþægilegt líkt myrkraverkum Josef Fritzl sem áttu sér stað í bænum Amstetten í Austurríki.
Landon er afkastamikill samsæriskenningarsmiður en hann hefur gefið út yfir 20 bækur um ýmsar samæriskenningar. Þá er hann meðlimur í Reichsburger, hópi öfga-hægrimanni sem trúi því að þýska keisaraveldið sé enn við lýði og að núverandi ríkisstjórn Þýskaland skipti litlu máli. Þá afneitar hann helförinni og hefur mikinn áhuga á austurríska söngvaranum Falco, sem lést árið 1998. Fullyrðir Landon að hann hafi komið að líki söngvarans og að skýringar á andláti hans séu yfirvarp.