fbpx
Sunnudagur 15.desember 2024
Fréttir

„Bein afleiðing af þessu er alvarlegt heilsutap, bæði líkamlegt og andlegt“

Ritstjórn DV
Föstudaginn 20. janúar 2023 14:06

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Rauði krossinn á höfuðborgarsvæðinu hefur unnið skýrslu um þær erfiðu aðstæður sem fólk sem er í svokallaðri umborinni dvöl á Íslandi býr við. Niðurstöðurnar sýna meðal annars að andlegri og líkamlegri heilsa þeirra hrakar sífellt og að fólkið býr við mikla óvissu um hvort það geti lifað mannsæmandi lífi.“

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Rauða krossinum. Þá er hugtakið umborin dvöl útskýrt en það á við um einstaklinga sem hafa fengið lokasynjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd og íslensk stjórnvöld geta ekki framkvæmt brottflutning þeirra úr landi, en vegna sértækra og fjölbreyttra aðstæðna.

„Þetta þýðir að fólkið býr við réttaróvissu og hefur takmörkuð réttindi og aðgengi að þjónustu í ótilgreindan tíma.“

Skýrslan sem um ræðir er afrakstur sex mánaða rannsóknarvinnu en markmiðið með henni var að meta þarfir þess fólks sem er í umborinni dvöl hér á landi. Hún inniheldur bæði þær takmörkuðu upplýsingar sem eru til um þennan hóp sem og vitnisburði úr viðtölum sem tekin voru við fólk sem er í umborinni dvöl á Íslandi.

Í tilkynningunni kemur fram að hugmyndin að rannsókninni hafi kviknað út frá samtölum milli umsækjenda um alþjóðlega vernd og lögfræðinga sem störfuðu hjá Rauða krossinum. „Þeir tóku eftir því hve augljóslega takmörkuð réttindi þessa hóps voru,“ segir í henni.

„Hópurinn sem viðtölin voru tekin við samanstendur af fimmtán einstaklingum frá Nígeríu og Írak sem hafa verið á Íslandi í eitt til sex ár. Í viðtölunum sögðu þátttakendur frá því hvernig þeir þurftu að þola ofbeldi og ótryggar aðstæður í heimalöndum sínum en hafi komið til Íslands til að finna öryggi.“

Einstaklingar sem eru á Íslandi í umborinni dvöl eru með skert aðgengi að réttindum og þjónustu þar sem þeir eru ekki með kennitölu. Því er það nánast ómögulegt fyrir þá að sækja um og hljóta atvinnuleyfi. Einnig leiddi rannsóknin það í ljós að börn fólks sem er í umborinni dvöl á Íslandi og fæðast hér eru í viðkvæmri stöðu vegna óvissu um ríkisfang sitt, þar sem það er óstaðfest af yfirvöldum í heimaríkjum þeirra.

„Flest þeirra sem tóku þátt í rannsókninni upplifa það að vakna og fara að sofa, dag eftir dag, án þess að hafa neitt að gera á daginn. Rannsóknin sýnir að bein afleiðing af þessu er alvarlegt heilsutap, bæði líkamlegt og andlegt, sem í sumum tilfellum ógnar lífi þeirra.“

Þá lýstu þáttakendur í rannsókninni þeirri ósk sinni að fá að lifa „venjulegu lífi“, það er að geta gert hversdagslega hluti eins og að fara í vinnuna, stofna fjölskyldu, hafa aðgang að heilbrigðisþjónustu og geta undirgengist nauðsynlegar læknisaðgerðir eða opna bankareikning. Í skýrslunni er þessi löngun skilgreind sem vilji til að lifa mannsæmandi lífi og hvatt er til ýmissa breytinga.

„Til að koma til móts við þarfir fólks sem er í umborinni dvöl þarf fyrst að búa til lagaramma sem gerir þeim kleift að hljóta betri réttarstöðu, til að mynda með leið að löglegu dvalarleyfi hér á landi. Í því samhengi þurfi að einfalda aðgengi þessa hóps að bráðabirgðadvalarleyfi sem og bráðabirgðaatvinnuleyfi. Þá sé brýnt að skoða sérstaklega aðstæður barna sem fæðst hafa hér á landi, en óvissa ríkir um lagalega stöðu og ríkisfang þeirra.“

Hægt er að lesa skýrsluna í heild sinni hér og styttri útgáfu af skýrslunni má finna hér á ensku og íslensku.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Allir mættu nema Mbappe
Fréttir
Í gær

Sveitarstjórn í Gran Canaria ríður á vaðið og setur á ferðamannaskatt – Tekur gildi eftir áramót

Sveitarstjórn í Gran Canaria ríður á vaðið og setur á ferðamannaskatt – Tekur gildi eftir áramót
Fréttir
Í gær

Ingólfur Kjartansson dæmdur í átta ára fangelsi

Ingólfur Kjartansson dæmdur í átta ára fangelsi
Fréttir
Í gær

Sakar Viðskiptaráð um þráhyggju og áróður – „Því er eðlilegt að spyrja hvað vaki fyrir Viðskiptaráði með jafn villandi framsetningu?“

Sakar Viðskiptaráð um þráhyggju og áróður – „Því er eðlilegt að spyrja hvað vaki fyrir Viðskiptaráði með jafn villandi framsetningu?“