Maður var þann 18. janúar sakfelldur fyrir fjársvik í gegnum Facebook og skrautleg þjófnaðarbrot. Dómurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Suðurlands.
Haustið 2020 þóttist maðurinn ætla að selja konu TREK-fjallahjól í gegnum Facebook-hópinn Reiðhjól til sölu. Hann fékk konuna til að millifæra á sig 15.000 krónur fyrir fulldempað fjallahjól sem hann hafði auglýst til sölu í hópnum. Hann afhenti konunni hins vegar aldrei hjólið.
Í sömu ákæru eru tilgreind skrautleg þjófnaðabrot mannsins. Þetta sama haust, um tveimur vikum eftir Facebook-svikin, braust hann inn um glugga gistiheimilisins Gesthús á Selfossi og stal þaðan meðal annars: Snjallsíma, fartölvu, lesbretti, Rolex-úri, 66°N úlpu, 66°N flísjakka, 66°N buxum, Camelback bakpoka, Under Armour bakpoka, svörtum bakpoka, Solomon 40 Quest skóm, gulri peysu, inniskóm, Ibuprofen geli, sólgleraugum, Beats heyrnartólum, Skull candy heyrnartólum, Sony heyrnartólum, tveimur höfuðljósum, brúnu leðurveski, svörtu hleðslutæki, tvílitum trefli og sígarettupakka.
Áætluð verðmæti þýfisins úr innbrotinu eru um tvær milljónir króna, en auk þess stal maðurinn 8 þúsund krónum í reiðufé.
Hann var einnig ákærður fyrir innbrot í íbúðarhús á Selfossi en þar stal hann tveimur úlpum og hátalara.
Loks stal hann Dewalt-veltisög að óþekktu verðmæti við sólpall á Selfossi.
Maðurinn játaði brot sín að fullu. Fram kemur í dómnum að hann hefur alls 18 sinnum áður verið sakfelldur fyrir brot, þar af eru níu auðgunarbrot. Fram kemur að hann var sakfelldur í Austurríki árið 2009 fyrir þjófnað og í Svíþjóð árið 2015.
Var hann að þessu sinni dæmdur í 90 daga fangelsi og til greiðslu sakarkostnaðar upp á rétt rúmlega 600 þúsund krónur.